Við leggjum áherslu á öruggt námsumhverfi og aðstæður til leiks og starfs svo börn öðlist trú á eigin getu , eflist og byggi upp seiglu. Snemmbær stuðningur, forvarnir og valdefling leggi grunn að vellíðan og velferð allra.
ÁherslurVið berum virðingu fyrir öllum einstaklingum og lífsháttum og leggjum áherslu á að námsumhverfi endurspegli margbreytileika mannlífsins. Fjölbreyttar kennsluaðferðir styðji við jafnræði, jafnrétti, lýðræði og mannréttindi.
ÁherslurVið leggjum áherslu á að börn fái tækifæri til að þroskast í gegnum leik, frístundir og skapandi skólastarf. Með frumkvöðlastarfi, tækni og listsköpun finnum við nýjar leiðir í skóla- og frístundaumhverfinu og þróum þær áfram.
ÁherslurVið byggjum upp námssamfélag með þátttöku allra. Samvinna stuðli að lýðræðislegri virkni og tengslum. Þverfagleg samvinna og teymi styðji við framþróun og nýjar nálganir.
Áherslur