Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Ungmennahús bjóða upp á fjölbreytt tómstundastarf fyrir ungt fólk í bænum. Í því starfi og gegnum ungmennaráð getur ungt fólk haft áhrif á þjónustu og aðstæður í bænum.
Ungmennaráð Hafnarfjarðar er vettvangur fyrir ungt fólk á aldrinum 13–18 ára til að koma sínum skoðunum til réttra aðila innan stjórnsýslu bæjarins.
Í Ungmennaráði sitja tveir fulltrúar úr hverjum grunnskóla í Hafnarfirði, þrír úr hverjum framhaldsskóla í Hafnarfirði og þrír fulltrúar sem eru valdir í gegnum Hamarinn. Í ráðinu sitja einnig tveir starfsmenn bæjarins sem ráðgjafar en þeir mega ekki hafa áhrif á starfsemina. Starfsmenn eru tilnefndir af æskulýðsfulltrúa.
Ungmennaráðið fundar á tveggja vikna fresti í Nýsköpunarsetrinu. Fundarstjórn og undirbúningur funda skiptist á milli meðlima ráðsins. Þannig gefst sem flestum tækifæri til þess að stýra fundum og kynnast því hvernig á að undirbúa fund. Fundarstjóri þarf jafnframt að passa upp á að mál séu tekin fyrir með skipulögðum hætti. Ákvarðanir funda eru ritaðar í fundargerð sem birtast á netinu.
Til að hafa samband við ungmennaráð er hægt að senda tölvupóst á ungmennarad@hafnarfjordur.is.
Markmið Ungmennaráðs Hafnarfjarðar er að skapa vettvang og leiðir fyrir þá sem eru yngri en 18 ára til að koma skoðunum sínum og tillögum á framfæri við viðeigandi aðila. Þátttaka ungs fólks er mikilvæg til þess að bæta þjónustu og aðstæður þeirra. Það á fyrst og fremst við um málefni sem viðkemur ungu fólki á einn eða annan hátt og þau þekkja af eigin reynslu. Þar má nefna skólastarf, tómstundastarf og skipulag nánasta umhverfis.
1.1 Nafn ráðsins er Ungmennaráð Hafnarfjarðar, skammstafað U.M.H., heimili þess og varnarþing er á Strandgötu 6 í Hafnarfirði. 1.2 Fulltrúar í U.M.H. geta orðið einstaklingar með lögheimili í Hafnarfirði sem eru á aldrinum 13 – 17 ára árið sem kosið er. 1.3 U.M.H. skal hafa umboð til athafna frá ungu fólki í Hafnarfirði. 1.4 Markmið U.M.H. er að veita þeim sem eru yngri en 18 ára fræðslu og þjálfun í lýðræðislegum vinnubrögðum og að skapa vettvang og leiðir til þess að gera þeim sem eru yngri en 18 ára kleift að koma skoðunum sínum á framfæri við viðeigandi aðila.
2.1 Í U.M.H. eiga 21 fulltrúi sæti. 2 úr hverjum grunnskóla í Hafnarfirði, 3 úr hverjum framhaldsskóla í Hafnarfirði og 3 fulltrúar valdir í gegnum Gamla Bókasafnið og mega þeir ekki vera nemendur í grunnskóla eða framhaldsskólum í Hafnarfirði. Verði breyting á fjölda skóla í Hafnarfirði, fjölgar eða fækkar fulltrúum í U.M.H. til samræmis við það. 2.2 Fulltrúar í U.M.H. skulu valdir af lýðræðislega kjörnum nemendaráðum skólanna. Nemendaráðunum er þar með í sjálfsvald sett hvernig þau haga því vali. Jafnrétti kynja skal haft að leiðarljósi þegar fulltrúar eru valdir. 2.3 Fulltrúar í U.M.H. skulu valdir fyrir 15. september að hausti ár hvert og sitja þar til nýjir fulltrúar eru valdir að ári. 2.4 Nú segir fulltrúi í U.M.H. af sér eða hættir af öðrum orsökum og skal þá nemendaráð viðkomandi skóla velja nýjan fulltrúa í hans stað sem situr út kjörtímabilið. Sama gildir ef lögheimili fulltrúa í U.M.H. flyst úr Hafnarfirði. 2.5 Hver fulltrúi getur í mesta lagi setið í þrjú ár í röð.
3.1 U.M.H. fundar á þriðjudögum á tveggja vikna fresti í húsnæði sem Hafnarfjarðarbær lætur í té. Starfsmenn ráðsins boða til fyrsta fundar og á honum skal ákveða fundartíma. 3.2 Fundarstjórn og undirbúningur funda skiptist á milli meðlima ráðsins og því er ekki kosinn eiginlegur formaður. Á fyrsta fundi hvers kjörtímabils skal sú verkaskipting ákveðin. 3.3 Starfsmenn ráðsins skulu tilnefndir af æskulýðsfulltrúa Hafnarfjarðarbæjar. Þeir taka ekki frumkvæði, nema ef brýna nauðsyn krefur. Starfsmenn ráðsins starfa fyrst og fremst sem ráðgjafar og mega því ekki hafa áhrif á starfsemi þess. Þeir rita einnig fundargerð ráðsins og aðstoða við að koma samþykktum þess áleiðis. 3.4 U.M.H. getur fellt niður fjóra fundi yfir sumartímann og jafnmarga fundi yfir vetrartímann við sérstakar aðstæður. 3.5 U.M.H. skal leitast við að halda fund með bæjarstjóra Hafnarfjarðar að hausti og bæjarstjórn Hafnarfjarðar að vori ár hvert. 3.6 Fundir ráðsins skulu fylgja almennum reglum um fundarsköp.
4.1 Nú samþykkir ungmennaráð breytingar á lögum þessum. Þá er kosið aftur samkvæmt óbreyttum lögum og þarf þá nýtt ungmennaráð að samþykkja breytingarnar til að þær öðlist gildi.
5.1 Fyrsta ungmennaráð Hafnarfjarðar verður valið í mars 2005 og starfar fram á haust sama ár. Samkvæmt lögum U.M.H. skal valið miðast við haustið 2004.
Hafnarfirði 4. nóvember 2011
Var efnið hjálplegt?