Fjölmenning
Hafnarfjörður tekur vel á móti fólki af erlendum uppruna og hvetur til aukinna þátttöku þeirra.
Innflytjendur í Hafnarfirði
Á undanförnum árum hefur Hafnarfjörður markvisst lagt aukna áherslu á málefni innflytjenda enda eru í kringum 16% íbúa bæjarins af erlendum uppruna. Pólverjar eru fjölmennastir, næstir þeim koma Litháar, Lettar, Rúmenar og Portúgalar.
Praktískar upplýsingar fyrir innflytjendur
- Fjölmenningarsetrið veitir innflytjendum upplýsingar um að flytja til Íslands, hvernig er að búa hér og hver réttindi þeirra eru.
- Á Ísland.is má finna upplýsingar um alla opinbera þjónustu
- Rafræn skilríki eru nauðsynleg fyrir flesta rafræna þjónustu á Íslandi.
- Living in Iceland er með praktískar upplýsingar fyrir innflytjendur á ensku.