Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Í lok árs 2018 settum við af stað tilraunaverkefni til átta mánaða í Hafnarfirði til þess að auka sérhæfingu í þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd og aðstoða fólk með dvalarleyfi. Lítil sem engin sérhæfing var innan kerfisins og fljótt kom í ljós gríðarlegt tækifæri til þess að bæta þjónustu við þennan hóp.
Ægir Örn Sigurgeirsson er deildarstjóri stoðþjónustu flóttafólks og umsækjenda um alþjóðlega vernd í Hafnarfirði. Ægir er menntaður félagsráðgjafi, verkefnastjóri MPM og starfaði um árabil hjá barnaverndarnefnd.
„Í lok árs 2018 settum við af stað tilraunaverkefni til átta mánaða í Hafnarfirði til þess að auka sérhæfingu í þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd og aðstoða fólk með dvalarleyfi. Lítil sem engin sérhæfing var innan kerfisins og fljótt kom í ljós gríðarlegt tækifæri til þess að bæta þjónustu við þennan hóp.“ Ægir segir þverfaglegt fyrirkomulag gera það kleift að halda þéttar utan um hóp flóttafólks og umsækjenda og aðlaga hann betur samfélaginu. Á myndinni er Ægir (til vinstri fyrir aftan) ásamt teymi sínu í stoðþjónustu flóttamanna. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
„Við vorum tvö í fyrstu en fljótt þurfti fleira starfsfólk. Þjónustusamningur Hafnarfjarðarbæjar um umsækjendur stækkaði úr 60 í allt að 100 manns og samræmd móttaka sveitarfélaga við flóttafólk fór í gang. Í dag erum við sjö starfsmenn í sex og hálfu stöðugildi. Tveir til viðbótar sjá um tilsjón við viðkvæmustu málin okkar. Önnur var sjálf flóttakona frá Sýrlandi. Hin starfaði í utanríkismálum í Afganistan með ýmsum aðilum. Tíundi starfsmaðurinn sér um það tímafreka verkefni að finna leiguhúsnæði fyrir fólk sem hefur fengið dvalarleyfi. Skjólstæðingar eru í öllum tilfellum að flýja aðstæður í heimalandinu, stríð, fátækt eða annað. Ef umsækjendur um vernd fá dvalarleyfi fá þessir einstaklingar lagalega stöðu flóttafólks,“ segir Ægir. „Hver og einn kemur með ólíka sýn, reynslu og þekkingu á málaflokknum. Í stað þess að hverju og einu máli sé úthlutað á einn ráðgjafa í senn vinnum við í 2-3 manna teymum með hverjum einstaklingi“.
„Við vildum setja allt sem snýr að málefnum flóttafólks undir eina deild. Við vinnum náið með öðrum deildum innan fjölskylduog barnamálasviðs og sjáum allt í senn um fræðslumál og fjölskyldu- og barnaverndarmál hjá bæði umsækjendum og flóttafólki. Árið 2014 voru settar leiðbeinandi reglur um móttöku á flóttafólki sem við höfum til hliðsjónar í okkar starfi. Þá aðstoðum við fólk við allt frá að panta tíma í klippingu í að útvega læknistíma eða aðstoða með útfarir. Einnig sjáum við um boðanir til Útlendingastofnunar og kærunefndar, veitum sálrænan stuðning, ráðgjöf og fleira. Með flóttafólki sem fengið hefur stöðu gerum við áætlun með hverjum og einum sem tekur mið af einstaklingsbundinni þarfagreiningu um þjónustu.
Hér í Hafnarfirði vildum við víkka út sjónarhornið á málaflokkinn og fá inn fólk með ólíkan bakgrunn. Við réðum inn lögfræðing, náms- og starfsráðgjafa og þróunarsérfræðing úr mannfræðigeiranum. Einnig starfar hjá okkur viðskiptafræðingur frá Palestínu. Hver og einn kemur með ólíka sýn, reynslu og þekkingu á málaflokknum. Í stað þess að hverju og einu máli sé úthlutað á einn ráðgjafa í senn vinnum við í 2-3 manna teymum með hverjum einstaklingi. Við sinnum öllum barnaverndarmálum sem koma upp innan þessa hóps og eru þau oft mjög flókin í vinnslu. Börnin eru í erfiðri stöðu eftir flótta og glíma mörg við alvarlegan sértækan vanda sem kallar á sérhæfingu. Við vinnum þá í nánu og farsælu samstarfi við Brúna sem er nýtt verklag innan Hafnarfjarðarbæjar.
Mun fleiri aðilar koma að vinnu hvers og eins skjólstæðings. Í dag erum við til dæmis með yfir 100 börn í sveitarfélaginu á okkar vegum. Af þeim eru 52 í leit að vernd. Þau eru í leik- og grunnskólum og glíma langflest við sértækan vanda. Þar starfar stór hópur fólks sem vinnur gott starf í þágu okkar skjólstæðinga. Þverfaglegt fyrirkomulag gerir okkur kleift að halda þéttar utan um þennan hóp og aðlaga hann betur samfélaginu,“ segir Ægir að lokum.
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…
„Hafnarfjarðarkortið er lykillinn að Hafnarfirði,“ segir Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar um þetta glænýja hafnfirska gjafa- og inneignarkort „Þetta…