Tónlistarskóli Hafnarfjarðar óskar eftir að ráða skólastjóra til starfa.

Fréttir

Starfið felur í sér að stýra skólanum þar sem um 600 nemendur stunda nám og  50 kennarar starfa við skólann í 34 stöðugildum. Kennt er á öll helstu hljóðfæri auk söngs.

Skólinn var stofnaður 1950 og starfar nú á tveimur stöðum
í Hafnarfirði. Í glæsilegum skóla að Strandgötu 51, sem vígður var 1997 og í
Tónkvísl við “Gamla Lækjarskóla” þar sem rytmiska deildin er til
húsa.

Starfið felur í sér að stýra skólanum þar sem um 600
nemendur stunda nám og  50 kennarar
starfa við skólann í 34 stöðugildum. Kennt er á öll helstu hljóðfæri auk söngs.

Í skólanum er starfandi sinfóníuhljómsveit, lúðrasveitir
auk fjölmargra annarra samspila. Tónlistarskólinn leggur áherslu á hlutverk
sitt sem ein af grunnstoðum fjölbreytts tónlistarlífs innan og utan
Hafnarfjarðar og sinnir því hlutverki með því að taka þátt í viðburðum og
tónleikahaldi víðsvegar.                                                                 

Mikilvægt er að umsækjandinn sé tilbúinn til að leiða
áfram það faglega starf sem byggt hefur verið upp í skólanum. Hann þarf að
styðja við uppbyggilegan skólabrag og sameiginlega sýn á metnaðarfullt
skólastarf. Viðkomandi þyrfti að geta hafið störf sem fyrst.

·        
Menntun á sviði tónlistar

·       Framhaldsmenntun í stjórnun æskileg

·       Þekking og reynsla af rekstri og
stjórnun í opinberri stjórnsýslu

·       Reynsla af tónlistarkennslu og
tónlistarflutningi

·       Leiðtogahæfni, metnaður og frumkvæði

·       Áhugi á skólaþróun og nýjungum

·       Góð íslenskukunnátta og færni til að
tjá sig í ræðu og riti

·       Góð tölvufærni

·       Framúrskarandi samskiptahæfni og
jákvætt viðmót

 

Helstu
verkefni og ábyrgðarsvið:

·       Veita Tónlistarskóla Hafnarfjarðar
faglega forystu

·       Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri

·       Umsjón með eftirliti og mati á
þjónustu skólans

·       Virk þátttaka í þróun og skipulagi
skólastarfsins og samvinna við sambærilegar stofnanir

·       Samstarf við bæjaryfirvöld og aðila
skólasamfélagsins.

Umsóknarfrestur er til og með 18. ágúst nk. Umsókn um starfið þarf að fylgja
greinargóð starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu
umsóknar, fyrri störfum umsækjanda, menntun, stjórnunarreynslu og þeim
verkefnum sem hann hefur unnið við og varpað geta ljósi á færni hans til að
sinna skólastjórastarfi.

Sótt er um starfið á vef Hafnarfjarðarbæjar www.hafnarfjordur.is

Upplýsingar um starfið veitir Gunnar Gunnarsson
skólastjóri tónlistarskóla Hafnarfjarðar gunngun@tonhaf.is og Fanney Dóróthe Halldórsdóttir sviðsstjóri fræðslu- og
frístundaþjónustu fanney@hafnarfjordur.is

Samkvæmt
jafnréttisstefnu Hafnarfjarðar eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um
starfið.

Ábendingagátt