Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Fastráðnir starfsmenn hjá Hafnarfjarðarbæ eru 2062 og starfa þeir á 70 starfsstöðvum víðsvegar um bæinn. Yfir sumartímann eru starfandi rúmlega 3.000 einstaklingar hjá sveitarfélaginu. Vaxandi þróun hefur verið í fjölda starfa
Viðtal við Guðrúnu Þorsteinsdóttur mannauðsstjóra var birt í Fjarðarfréttum miðvikudaginn 26. júní 2019.
Fastráðnir starfsmenn hjá Hafnarfjarðarbæ eru 2062 og starfa þeir á 70 starfsstöðvum víðsvegar um bæinn að sögn Guðrúnar Þorsteinsdóttur mannauðsstjóra hjá Hafnarfjarðarbæ. Yfir sumartímann þá eykst starfsmannafjöldinn umtalsvert en bætast við um 1000 til viðbótar. Yfir sumartímann eru því starfandi rúmlega 3.000 einstaklingar hjá sveitarfélaginu.
Guðrún Þorsteinsdóttir, mannauðsstjóri Hafnarfjarðarbæjar
Það er mikil aðsókn í öll sérfræðistörf, segir Guðrún sem sjálf kom til starfa hjá Hafnarfjarðarbæ 1. október sl. „Nýlega höfum við ráðið til okkar sviðsstjóra og starfsfólk í launadeild og bókhald og erum að vinna að ráðningu á sérfræðingi í BRÚNA (Barn | Ráðgjöf | Úrræði) sem er tiltölulega ný þjónusta innan sveitarfélagsins“. Segir hún áhugann fyrir öllum þessum störfum mikinn, umsóknir velti á tugum og valið oft erfitt. „Menntunarstig umsækjanda er almennt að hækka og áhugi fyrir því að starfa innan sveitarfélaga virðist vera að aukast. Stór hluti okkar starfsfólks vinnur innan skólasamfélagsins í Hafnarfirði og því miður þá hefur fagmenntuðum í leikskólum og grunnskólum heilt yfir á Íslandi farið fækkandi eða fjöldinn í það minnsta staðið í stað. Það er landlægt vandamál sem vonandi verður upprætt með öllum þeim aðgerðum sem meðal annars eru í gangi hjá Menntamálaráðuneytinu þessa dagana, allavega hefur aðsókn í fagnám ekki verið meiri síðustu ár. Við höfum einnig gert ýmislegt til að laða fagmenntaða í skólana okkar og það hefur alveg verið að skila sér. Þannig er t.a.m. starfandi hjá okkur hópur af fólki sem er í starfi samhliða fagnámi og fær aðstoð til þess. Eins höfum við verið að hvetja þá sem hafa starfað án fagmenntunar árum saman til þess að sækja sér fagmenntun við hæfi og þannig hefur opnast spennandi tækifæri fyrir marga. Þessar aðgerðir og fleiri eru afrakstur samvinnu og samtals starfshópa um bættar starfsaðstæður bæði innan leik- og grunnskólanna í Hafnarfirði,“ segir Guðrún.
„Í ár höfum við auglýst 248 laus störf og á sama tíma í fyrra voru auglýst störf 271. Í heild hafa 2814 umsóknir borist í þessi 248 störf sem við höfum auglýst það sem af er þessu ári en á sama tíma í fyrra höfðu 2.349 umsóknir borist í þau 271 störf sem auglýst höfðu verið. Fjölgun umsókna er því 465 á milli ára eða um 20% fleiri umsóknir. Árið 2016 voru umsóknirnar 2.031 og 2017 voru þær 2.287. Sem sagt vaxandi þróun í fjölda umsókna síðustu ár þó svo að fjöldi starfa hafi ekki endilega aukist. Þannig eru 11 umsóknir um hvert auglýst starf í ár og 9 umsóknir um hvert auglýst starf árin 2017 og 2018. Þetta gefur ákveðin skilaboð.“
Það eru rétt um 1000 einstaklingar í sumarstörfum hjá Hafnarfjarðarbæ. Rétt tæplega 700 ungmenni á aldrinum 14-16 ára sem eru um 63% af þessum aldurshóp í Hafnarfirði að sögn Guðrúnar. „Þessi hópur sinnir fjölbreyttum verkefnum, skiptast í almenna vinnuhópa, umhverfishóp, listahóp, jafningjafræðslu og aðstoð á íþrótta- og leikjanámskeiðum hjá íþróttafélögum. Svo eru um 300 einstaklingar 17 ára eldri einnig að vinna hjá okkur í sumar í verkefnum sem snúa m.a. að íþróttafélögunum, viðhaldsverkefnum og garðyrkju,“ segir Guðrún.
„Það er örugglega margt sem spilar hér inn í m.a. staða á atvinnumarkaði og þær sviptingar sem hafa orðið á síðustu mánuðum. Ég hef það líka á tilfinningunni að þeir þættir sem umsækjendur horfa í séu orðnir víðtækari en bara kaup og kjör. Þannig sé fólk í auknu mæli farið að horfa í störf í heimabyggð eða í nærliggjandi sveitarfélagi enda mikill kostur að þurfa ekki að ferðast langar leiðir til og frá vinnu, fríðindi, fjölbreytileikann og reynsluna sem hægt er að öðlast í starfi fyrir sveitarfélag. Verkefni sveitarfélaga eru skapandi og skemmtileg og ná þannig til ýmissar þjónustu skipulagsmála, menningu og lista og fjölbreyttra starfa með börnum, unglingum, fjölskyldum, einstaklingum, öldruðum og fötluðu fólki.
Nýlega var ákveðið að allir fastráðnir fá frítt í sund í sundlaugum Hafnarfjarðar og svo erum við búin að vera með líkamsræktarstyrki um nokkurra ára skeið. Þannig er líka hægt að gera samgöngusamning við vinnustaðinn svo það er margt í boði á okkar góða vinnustað. Síðan hefur Hafnarfjarðarbær bara heilt yfir verið í vexti á öllum sviðum; fleiri íbúar, fleiri fyrirtæki og almennt meira í boði. Litli og vinalegi Hafnarfjörður er alls ekki svo lítill lengur en við náum sem betur fer að halda vinalega yfirbragðinu og það finnst fólki líka heillandi. Að vera virkir þátttakendur í því að skapa og viðhalda þessum einstaka bæjaranda sem bærinn býr yfir,“ segir Guðrún Þorsteinsdóttir í samtali við Fjarðarfréttir.
Skipaður hefur verið starfshópur sem finna á nýjum golvelli stað í landi Hafnarfjarðar. Samráð verður haft við hagsmunaaðila.
Fuglaflensa hefur greinst á höfuðborgarsvæðinu. Heilbrigðiseftirlit sveitarfélagsins hefur samið við Dýraþjónustu Reykjavíkur um að fjarlæga dauða fugla. Meindýraeyðar þurfa staðsetningu…
Drög að nýrri umhverfis- og auðlindastefnu fyrir Hafnarfjörð liggja fyrir. Kallað er eftir þátttöku íbúa í rýni á drögum og…
Ákveðið hefur verið að setja upp tvo nýja ærslabelgi í Hafnarfirði á árinu 2025 á völdum opnum svæðum í bænum…
Alls voru 524 nýjar íbúðir fullbúnar í Hafnarfirði í fyrra. Þær bættust í hóp 11 þúsund íbúða í bæjarfélaginu. Nýjum…
FH, Hafnarfjarðarbær og Íþróttabandalag Hafnarfjarðar (ÍBH) hafa tekið höndum saman og bjóða frá 15. janúar fótboltaæfingar fyrir börn í 1.-10.…
Tafir hafa orðið á sorphirðu nú á nýju ári. Ljóst er að tunnurnar verða tæmdar viku á eftir áætlun. Unnið…
Algjörar skvísur verður sú fimmtánda í haustsýningarröð Hafnarborgar. Verkefnið hefur það að markmiði að gefa breiðu sviði sýningarstjóra kost á…
Alls sátu 100 foreldrar PMTO-foreldrafærninámskeið hjá Hafnarfjarðarbæ í fyrra. Foreldrarnir fá kennslu og eru þjálfaðir í styðjandi leiðum í uppeldishlutverki…
Nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Valdimar Víðisson, er með opna viðtalstíma alla þriðjudaga frá kl. 9:30 – 11:30. Viðtalstímar eru bókaðir í…