Náttúruperla í suðurhlíðum Ásfjalls
Í hverfinu munu rísa um 550 íbúðir og er reiknað með að fjöldi íbúa verði um 1.400. Áhersla er lögð á að hverfið tengist innbyrðis með grænum svæðum eða trjábeltum. Í þessum beltum verða göngustígar og fjöldi af gróðursettum trjám sem mynda skjól og náttúrutengsl. Auglýsing á deiliskipulagi nýs hverfis og auglýsing á breytingu á aðalskipulagi Áslands 4 og 5 var staðfest á fundi bæjarstjórnar 9. febrúar 2022.
Lágreist sérbýli og lítil fjölbýlishús
Megináhersla í Áslandi 4 er á lágreistar sérbýlisíbúðir, einbýli, par- og raðhús auk lítilla fjölbýlishúsa með sérinngöngum og óverulegri sameign. Alls eru um 550 íbúðir, þar af um 200 í einbýlishúsum, um 130 í rað- og parhúsum og um 220 í litlum fjölbýlishúsum. Gert er ráð fyrir 3–4 deilda leikskóla. Stutt er í útivistarsvæðin við Hvaleyrarvatn auk skógræktar og fjölbreyttrar náttúru víðsvegar í upplandi bæjarins. Eitt af aðalmarkmiðum skipulagsins er að nýta vel einstakt útsýni til suðurs í átt að Helgafelli og Lönguhlíðum.

Íbúðahverfið er í framhaldi af hverfum báðum megin: Ásland 3 og ný íbúðahverfi í Skarðshlíð og Hamranesi. Svæðið markast af Ásfjalli með Mógrafarhæð sem stingst inn í svæðið frá norðri, íbúðarbyggð Áslands 3 í norðaustri, Ásvallabraut í austri og suðri og nýrri íbúðabyggð í Skarðshlíð og Hamranesi í vestri.
33 lóðir fyrir einbýli og 6 lóðir fyrir raðhús og fimm fyrir parhús
Fullbyggt mun hverfið hýsa rúmlega 850 íbúðir eða 200 einbýlishús, 440 íbúðir í fjölbýlishúsum og um 210 rað- og parhús auk þess sem gert er ráð fyrir 3-4 deilda leikskóla. Áætlaður íbúafjöldi svæðisins í heild verður um 2.500. Í þessum öðrum áfanga eru lausar til úthlutunar í Áslandi 4:
- 33 lóðir fyrir einbýli – þar af 25 einbýli á einni hæð og 40 einbýli á tveimur hæðum
- 6 raðhúsalóðir – með samtals 36 íbúðum
- 5 parhúsalóðir – með samtals 10 íbúðum
Innviðir og þjónusta á svæðinu og nærliggjandi íbúðarsvæðum
- Leikskólar í Hamranesi, Skarðshlíð, Áslandi og Áslandi 4
- Grunnskólar í Hamranesi, Skarðshlíð og Áslandi auk þess sem ráðgert er að grunnskóli verði byggður í nýju Vatnshlíðarhverfi (næsta nýja hverfi)
- Heilsugæsla í Hamranesi
- Hjúkrunarheimili í Hamranesi
- Íþróttamiðstöð á Ásvöllum
- Ásvallalaug
- Í jarði á Áslandi 4 er afmarkaður reitur fyrir verslun og þjónustu sem á að þjóna Áslandi og Vatnshlíð til framtíðar. Afmarkaður reitur fyrir grunnskóla og leikskóla
- Nærtækust í dag er verslun, veitingar og þjónusta við Tjarnarvelli auk þess sem stutt er í þjónustu í öðrum hverfum
- Opnum leiksvæðum verður komið fyrir í grænum geirum skipulagsins
- Svæðið er tengt stofnbrautarkerfinu með tveimur tengingum á hringtorgum, þ.e. tenging miðsvæðis við Ásvallabraut nálægt hæstu legu hennar og önnur vestar nær Grófarlæk.
- Tvöföld Reykjanesbraut, mislæg gatnamót við Krýsuvíkurafleggjara og ný Ásvallabraut sem tengir ný íbúðarhverfi við Kaldárselsveg
- Aðgengilegt og öruggt stíga- og gatnakerfi er til þess fallið að örva fjölbreytta samgöngumáta. Áhersla er lögð á góðar tengingar við nálægar stofnbrautir og stofnstíga.
- Stígatengingar við nærliggjandi íbúðarsvæði og Áslandsskóla
- Gert er ráð fyrir tveimur biðstöðum almenningsvagna við Ásvallabraut. Skipulagssvæðið verður í innan við 800 m göngufæri frá stoppistöðvum. Við biðstöðvar verður gert ráð fyrir hjólastæðum