Framför í vistvænum samgöngum

Framkvæmdir við nýjan og uppfærðan göngu- og hjólreiðarstíg vestan við Reykjavíkurveg frá Hraunbrún að sveitarfélagsmörkum við Garðabæ ganga samkvæmt áætlun og miðar vel áfram. Unnið hefur verið að jarðvinnu og lagningu nýs hjólastígs samhliða núverandi göngustíg á grænu svæði milli Reykjavíkurvegar og íbúðahúsa. Göngustígurinn verður uppfærður samhliða. 

Stígurinn hefst við Hraunbrún og þverar Hjallabraut um umferðarljós við gatnamót Reykjavíkurvegar og sameinast núverandi stíg við sveitarfélagsmörk Garðabæjar.

Ekki er gert ráð fyrir að framkvæmdin hafi mikil áhrif á umferð, þó verða einhver áhrif vegna framkvæmda við gatnamót Hjallabrautar og Reykjavíkurvegar. Gert er ráð fyrir að uppfæra umferðarljósin samhliða þessum framkvæmdum.

VSÓ ráðgjöf sá um for- og verkhönnun. Betri samgöngur er verkkaupi í samvinnu við Hafnarfjarðarbæ. Stígarnir verða svo afhentir til Hafnafjarðarbæjar að framkvæmdum loknum, þegar öllum yfirborðsfrágangi er lokið. Hafnarfjarðarbær mun hafa eignarhald á stígunum og sjá um þjónustu og rekstur þeirra.

Stígakerfi að þróast í nútímalegri og öruggari lausn 

Núverandi stígur sem til þessa hefur þjónað bæði hjólandi og gangandi umferð verður tvöfaldaður og umferðin aðskilin. Framkvæmdin mun þannig stuðla að auknu öryggi og bættri upplifun fyrir alla sem nota vistvænar samgöngur. Hjólastígurinn hefur þegar verið lagður á hluta leiðarinnar og yfirborðsfrágangur á göngustíg stendur yfir. 

Framkvæmdir við gatnamót Hjallabrautar og Reykjavíkurvegar 

Við gatnamótin eru framkvæmdir við uppfærslu umferðarljósa  að hefjast. Á meðan unnið er að þeim geta skapast tímabundnar tafir, en leitast er við að halda öllu raski í lágmarki. Samhliða reyndist óhjákvæmlegt að fjarlægja nokkur tré til að gera stíga sem best úr garði gerðann. 

Samvinna og framtíðareign 

Verkið er unnið af Betri samgöngum í samvinnu við Hafnarfjarðarbæ. VSÓ ráðgjöf sá um for- og verkhönnun. Að framkvæmdum loknum verða stígarnir afhentir Hafnarfjarðarbæ, sem mun eiga og annast rekstur og viðhald þeirra til framtíðar. Þegar framkvæmdum lýkur verður stígakerfið tengt við stíga í Garðabæ og þannig myndast samfelld og örugg leið fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur milli hverfa og sveitarfélaganna.  

Ábendingagátt