Vaxtarhugarfar snýst um hugarfar til eigin getu og hæfileika

Fréttir

Hafnarfjarðarbær mun hefja sérstakt þróunarverkefni um innleiðingu á hugmyndafræði um vaxtarhugarfar í leik- og grunnskólum bæjarins frá og með komandi hausti. Um er að ræða fimm ára fræðslu- og rannsóknarverkefni sem unnið er í samstarfi við dr. Hermund Sigmundsson, prófessor í sálfræði. Verkefnastjóri verkefnisins er doktorsnemi í sálfræði, Bergsveinn Ólafsson.

Þróunarverkefni um innleiðingu á vaxtarhugarfari í leik- og grunnskólum Hafnarfjarðar

Hafnarfjarðarbær mun hefja sérstakt þróunarverkefni um
innleiðingu á hugmyndafræði um vaxtarhugarfar í leik- og grunnskólum bæjarins
frá og með komandi hausti. Um er að ræða fimm ára fræðslu- og
rannsóknarverkefni sem unnið er í samstarfi við dr. Hermund Sigmundsson,
prófessor í sálfræði. Verkefnastjóri verkefnisins er doktorsnemi í sálfræði,
Bergsveinn Ólafsson.

Vaxtarhugarfar eykur líkur á árangri og betri líðan

Hugmyndafræðin byggir á því að
viðhorf sem miðar að því að með því að leggja sig fram geti náðst betri árangur
og því er jákvætt viðhorf til eigin getu forsenda þess að taka framförum. Þetta
viðhorf felur í sér vaxtarhugarfar og með því að tileinka sér eða rækta slíkt
hugarfar aukast líkur á meiri árangri og betri líðan í skóla og í lífinu
yfirleitt. Andstæða vaxtarhugarfars
er fastmótað hugarfar eða viðhorf sem felur í sér að hafa ekki trú á eigin getu
eða möguleika á árangri og því sé ekki ástæða til að leggja sig fram við það.

Í leik- og grunnskólum
Hafnarfjarðar fá nemendur fræðslu um vaxtarhugarfar frá og með haustinu 2021 og
mælingar fara fram fyrir og eftir fræðslu til að meta árangurinn.

Einstaklingsmiðuð nálgun og markmiðasetning

Hugmyndafræði um vaxtarhugarfar
hefur náð eyrum skóla- og menntasamfélaga víða. Skólastarf er í sífelldri þróun
og leiðir til náms í stöðugri mótun og ræður viðhorf til menntunar miklu til um
hvernig úr spilast. Verkefninu er ætlað að þróa og stuðla að hugarfari sem
leggur áherslu á að hver nemandi hefur möguleika á að ná markmiðum sínum og
bæta getu og frammistöðu með því að leggja sig fram og gefast ekki upp á
leiðinni. Verkefnið nær jafnt til nemenda og kennara í að skapa menningu sem
byggir á þessu viðhorfi til náms. 

Ábendingagátt