Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Það mætti segja að skrúðgarðyrkjumeistarinn Björn Bögeskov Hilmarsson beri ættarnafn með rentu, því það er danska útgáfan af orðinu er beykiskógur. Björn, eða Böddi eins og hann er kallaður, sem hefur starfað hjá Hafnarfjarðarbæ í tæp 30 ár, er forstöðumaður þjónustumiðstöðvar Hafnarfjarðar við Norðurhellu. Þar starfa 19 manns að jafnaði og verkefnalistinn er langur og árstíðabundinn.
Það mætti segja að skrúðgarðyrkjumeistarinn Björn Bögeskov Hilmarsson beri ættarnafn með rentu, því það er danska útgáfan af orðinu er beykiskógur. Björn, eða Böddi eins og hann er kallaður, sem hefur starfað hjá Hafnarfjarðarbæ í tæp 30 ár, er forstöðumaður þjónustumiðstöðvar Hafnarfjarðar við Norðurhellu. Þar starfa 19 manns að jafnaði og verkefnalistinn er langur og árstíðabundinn. Hafnfirðingur kíkti í heimsókn.
Björn kom til starfa á samningi hjá bænum árið 1990 eftir að hafa lært skrúðgarðyrkju og tók við af Kristjáni Inga Gunnarssyni, garðyrkjustjóra bæjarins, fjórum árum síðar. „Þá hét þetta áhaldahús og hér störfuðu um 50 manns. Þjónustan var upphaflega við Flatahraun, var svo færð til Hringhellu árið 2001 og árið 2008 til Norðurhellu. Hér eru í dag á einum stað skipulags- og byggingasvið, veiturnar, umhverfis- og rekstrardeild og fasteignafélag sem sér um allar eignir bæjarins. Þjónustan við íbúa er bættari fyrir vikið.“
Starfsfólk Þjónustumiðstöðvarinnar annast margvísleg verkefni sem lúta að þjónustu við íbúa og stofnanir bæjarins, s.s. viðhalds- og rekstrarverkefnum, nýframkvæmdum, eftirliti á ýmsu er tilheyrir gatnakerfinu, göngustígum, opnum svæðum, opnum leikvöllum og upplandi bæjarins. „Verkefnin eru flest árstíðabundin. Frá því að við fluttum í Helluhverfið byrjum við alltaf daginn á 15-20 mínútna morgunfundi með verkstjórunum, um verkefni dagsins, þar sem við skoðum hvað náðist að klára daginn áður og leggjum upp daginn. Um þessar mundir er rýnt í veðurspá og mögulegar hálkuvarnir, söltun og söndun. Jólaskreytingarnar eru einnig á leið upp núna, aðallega í miðbænum en einnig jólaljós á grenitré víðar í bænum. Svo erum við að gera jólahúsin tilbúin fyrir Jólaþorpið,“ segir Björn.
Í Hafnarfirði eru hátt í 70 leik- og sparkvellir sem þarf að við halda og aðstoða leik- og grunnskóla sem og stofnanir bæjarins í mismunandi verkefnum s.s. að flytja húsgögn og búnað á milli húsa o.s.frv. „Við sjáum líka um gatnaviðhald, s.s. brotna kantsteina, holufyllingar og frágang eftir framkvæmdir veitna. Tveir menn sjá um alla ruslakassa í bænum; að losa þá og hreinsa sem og biðskýli. Svo erum við með 2-3 í garðyrkjudeildinni, sem er mjög víðfeðmt starf. Á sumrin koma líka hátt í 1000 ungmenni í Vinnuskólann. Ef vetur verða harðir, þá fer meira og minna allur mannskapurinn og verktakar að auki í að halda stofnæðum, götum og göngustígum færum. Óskastaðan er 22-23 stöðugildi sem fastir starfsmenn í þjónustumiðstöð, en mjög gott að geta leitað til sérhæfðra verktaka og fagfólks við lausn á hinum ýmsu verkefnum sem þarf að framkvæma. Það er aldrei lognmolla hér, góður andi, verkefnin klárast aldrei koma bara ný og ég hlakka til hvers dags,“ segir Björn og brosir.
Þessi umfjöllun birtist fyrst í Hafnfirðingi 21. nóvember síðastliðinn.
Yfir fimmtíu þúsund hafa nú stigið inn á Thorsplan og notið Jólaþorpsins með okkur. Nú hefst sjötta og síðasta helgi…
Félagsskapur Karla í skúrnum hefur vaxið og dafnað allt frá því hann var stofnaður 2018 – fyrst hér í Hafnarfirði.…
Stór dagur var hjá Miðstöð vinnu og virkni í gær. Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður Miðstöðvarinnar, segir að þótt dagurinn hafi verið…
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…