Viðburða- og verkefnastyrkir

Fréttir

Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna og viðburða á sviði menningar og lista í Hafnarfirði.  Umsóknum skal skila inn með rafrænum hætti fyrir 15. febrúar 2018.

Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna og viðburða á sviði menningar og lista í Hafnarfirði.  Umsóknum skal skila inn með rafrænum hætti fyrir 15. febrúar 2018.

Tvisvar á ári auglýsir menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar eftir umsóknum um styrki til menningarstarfsemi og eflingar á hafnfirsku menningarlífi. Markmiðið er að styðja við menningarstarfsemi í samræmi við menningarstefnu bæjarins og styrkja einstaklinga og félagasamtök til lista- og menningarsköpunar. Listamenn, félagasamtök, stofnanir eða menningarviðburðir verða að tengjast Hafnarfirði á einhvern hátt.  Með fastri búsetu, með því að viðburðurinn fari fram í Hafnarfirði eða feli í sér kynningu á menningarstarfsemi Hafnarfjarðar. Ekki er styrkt til ferðalaga, náms og rekstrar.

Í umsókn þarf eftirfarandi að koma fram:

  • Markmið, lýsing og tilefni umsóknar
  • Styrkupphæð
  • Tíma- og verkáætlun
  • Önnur fjármögnun
  • Kostnaðaráætlun

 

Menningar- og ferðamálanefnd metur umsóknir eftir markmiðum verkefna og hvernig þau nýtast til að efla fjölbreytt menningarlíf bæjarbúum og hafnfirskum listamönnum til góðs. Tekið er mið af raunhæfni verkefna, kostnaðaráætlun auk tíma- og verkáætlunar. Styrkhöfum ber að skila stuttri greinargerð um ráðstöfun styrkfjár eigi síðar en ári eftir úthlutun.

Úthlutunarreglur vegna styrkja til menningarstarfsemi.

Umsóknum skal skila með rafrænum hætti í gegnum Mínar síður á heimasíðu Hafnarfjarðarbæjar: www.hafnarfjordur.is .  Athugið að til þess að sækja um þarf að skrá sig inn á Mínar síður. Aðstoð við skráningu er hægt að fá hjá Þjónustuveri Hafnarfjarðar í síma: 585-5500 eða  hafnarfjordur@hafnarfjordur.is.

Umsóknarfrestur er til og með 15. febrúar 2018.

Ábendingagátt