🌿 VINABÖND & PERLUR Í HELLISGERÐI

🕒 13:00 – 19:00
📍 Hellisgerði

Kynningaropnun Helliskaffis í Hellisgerði

Við bjóðum gestum velkomna á kynningaropnun Helliskaffis í Hellisgerði. Komið og njótið notalegrar stundar í fallegu umhverfi garðsins þar sem fjölskyldur og vinir geta komið saman og átt góða stund.

Í Helliskaffi verða drykkir, léttar veitingar og ís til sölu.

Fyrir börnin verður ýmislegt skemmtilegt á dagskrá. Hægt verður að gera vinabönd, föndra með perlum, mála steina og taka þátt í fjölbreyttu föndri fyrir alla aldurshópa.

Brekkusöngur barnanna kl. 17!

Andri Eyvindsson, tónlistarmaður og kennari verður með um 30 mínútna langa söngstund en hún samanstendur af klassískum leikskólalögum sem flest íslensk börn þekkja og elska.

Við hlökkum til að taka á móti gestum og kynna Helliskaffi fyrir bæjarbúum og öðrum gestum í þessu einstaka umhverfi í Hellisgerði.

 

Ábendingagátt