🎨 HAFNARBORG – LISTIR & ÞJÓÐBÚNINGAR

🕒 12:00–17:00
📍 Strandgata 34
Verið hjartanlega velkomin í Hafnarborg á 17. júní.

Helgi Þorgils Friðjónsson: Stór heimur

Á sýningunni getur að líta ný og nýleg verk eftir Helga Þorgils Friðjónsson, unnin á síðastliðnum fimm árum. Helgi Þorgils hefur um áratugaskeið verið einn af afkastamestu myndlistarmönnum landsins. Allt frá upphafi ferlisins á miðjum áttunda áratugnum vakti hann athygli fyrir nýstárlegan og persónulegan frásagnarmáta sem hefur skapað honum sérstöðu í íslensku myndlistarlífi og viðurkenningu á alþjóðlegum vettvangi.

May Show Signs of Minor Defects

Sveinn Fannar Jóhannsson hefur lengi unnið með fundnar ljósmyndir og annað efni sem hefur lent utan við upprunalegt samhengi sitt. Við sjáum myndir af pörum, af strandlengju, af óskreyttu jólatré. Flokkarnir eru kunnuglegir en hnitin horfin. Það sem er þó svo grípandi er ekki aðeins treginn sem þessar týndu myndir bera með sér, heldur það sem þær draga í leiðinni fram. Þá veltur merking þeirra á einhvers konar umgjörð, það er að segja á því að einhver gefi þeim samhengi.

🇮🇸 Fjöltyngd fánasmiðja í Apótekinu frá kl. 12-14. Á staðnum verður efniviður til að búa til sinn eigin íslenska ‏þjóðfána úr hvítum, bláum og rauðum pappír, en einnig verða litir fyrir þá sem vilja gefa ímyndunaraflinu lausan taum og hanna sína eigin fána.

📷 Þjóðbúningamyndataka kl. 15:00
Við Hafnarborg verður haldin þjóðbúningamyndataka – hvetjum alla til að mæta í búningum og taka þátt í að varðveita fegurð og fjölbreytni þjóðbúningaarfsins 👘🇮🇸📸

🆓 Aðgangur ókeypis – öll hjartanlega velkomin!🧡🎉

Ábendingagátt