Sönghátíð í Hafnarborg 2026 – dagskrá
Sönghátíð í Hafnarborg verður haldin í tíunda sinn dagana 13. til 28. júní 2026. Hátíðin er helguð klassískri tónlist, ljóða-, óperu- og…
Á þjóðhátíðardaginn, 17. júní kl. 12-14, bjóða Hafnarborg og GETA öll velkomin í safnið að búa til sína eigin þjóðhátíðarfána. Á staðnum verður efniviður til að búa til sinn eigin íslenska fána úr hvítum, bláum og rauðum pappír en einnig verða í boði litir fyrir þau sem vilja gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn og hanna sína eigin fána eða jafnvel búa til aðra þjóðfána. Tungumál smiðjunnar eru íslenska, enska og spænska.
Umsjón með smiðjunni hefur mexíkóski myndlistarmaðurinn Hugo Llanes sem hefur verið búsettur á Íslandi undanfarin átta ár. Hugo er með MA-gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands en stundar um þessar mundir nám í íslensku sem annað mál við Háskóla Íslands.
Á mínu máli er viðburðaröð sem miðar að því að auka aðgengi fólks með margs konar bakgrunn að Hafnarborg með því að bjóða gesti velkomna á ólíkum tungumálum. Viðburðurinn er samstarf Hafnarborgar og samtakanna GETU sem með fjölbreyttum viðburðum og félagsstarfi leitast við að stuðla að inngildingu og jákvæðri fjölmenningu. Verkefnið er styrkt af safnasjóði.
Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin.
Sýningar safnsins verða einnig opnar eins og venjulega, kl. 12-17: Stór heimur eftir Helga Þorgils Friðjónsson og May Show Signs of Minor Defects eftir Svein Fannar Jóhannsson. Að auki mun Annríki halda sérstaka þjóðbúningasýningu í Apótekinu á jarðhæð safnsins, líkt og hefð hefur skapast fyrir í safninu undanfarin ár. Í tengslum við sýningu Annríkis bendum við jafnframt á að þjóðbúningamyndataka fer fram við Hafnarborg kl. 15.
Sönghátíð í Hafnarborg verður haldin í tíunda sinn dagana 13. til 28. júní 2026. Hátíðin er helguð klassískri tónlist, ljóða-, óperu- og…
Sunnudaginn 14. júní kl. 13 mun Helgi Þorgils Friðjónsson, myndlistarmaður, taka á móti gestum og ræða um nýopnaða einkasýningu sína, Stóran heim, ásamt…
⚔️ VÍKINGAHÁTÍÐ Á VÍÐISTAÐATÚNI 🕒 11:00–18:00 📍 Víðistaðatún Farið aftur í tímann og upplifið hinn víkinglega anda! Á 29. Víkingahátíðinni…
Á þjóðhátíðardaginn, 17. júní kl. 12-14, bjóða Hafnarborg og GETA öll velkomin í safnið að búa til sína eigin þjóðhátíðarfána.…
🎤 TÓNLISTARVEISLA Á THORSPLANI 🕒 19:00–21:30📍 Thorsplan – miðbær HafnarfjarðarKvöldið rís með takt og tónlist! 🎶 Á sjálfan 17. júní…
🌊 Herjólfsgufan við Langeyrarmalir – Gufa og sjór í fullkomnu jafnvægi 📍 Langeyramalir, Hafnarfirði 📅 Miðvikudaginn 17. júní 🕐 Kl.…
🎨 HAFNARBORG – LISTIR & ÞJÓÐBÚNINGAR 🕒 12:00–17:00📍 Strandgata 34Verið hjartanlega velkomin í Hafnarborg á 17. júní. Fjöltyngd fánasmiðja í…
🛹 BRETTASTEMNING Á SELHELLU 🕒 10:00–14:00📍 Selhella 7Komdu og prófaðu hjólabretti, BMX og hlaupahjól í glænýrri aðstöðu Brettafélags Hafnarfjarðar! Opið…
🎉 Öll hús Byggðasafnsins opin á þjóðhátíðardaginn – 17. júní!🕚 Opið kl. 11:00–17:00 🎺 Lúðrasveit Hafnarfjarðar spilar fyrir utan Pakkhúsið…
⛵ SIGLINGAR MEÐ ÞYT 🕒 12:00–16:00📍 Siglingaklúbburinn ÞyturUpplifðu hafið! Siglingaklúbburinn Þytur býður þér að prófa kajak, SUP, kænur og kjölbát…