Sunnudaginn 8. febrúar kl. 13-15 býður Hafnarborg upp á fjöltyngda klippismiðju þar sem þátttakendur skapa sitt draumaheimili og velta því fyrir sér hvað skiptir máli, hvað við viljum hafa á heimilinu og hvað okkur dreymir um. Unnið verður með klippimyndir í bland við teikningu, þar sem hugmyndir um heimili spretta upp úr ímyndunaraflinu. Dýr, ævintýraleg form og hús sem svífa um í geimnum eiga hér fullt erindi. Tungumál smiðjunnar eru tékknéska, íslenska, enska og þýska, undir leiðsögn þeirra Marie Vesela og Anne Rombach.

Smiðjan fer fram á jarðhæð safnsins og er opin öllum aldurshópum. Engrar fyrri kunnáttu í listsköpun er krafist en börn skulu vera í fylgd með foreldri eða forráðamanni. Eins og alltaf er þátttaka í smiðjum sem og aðgangur að sýningum safnsins gestum að kostnaðarlausu.

Á mínu máli er viðburðaröð sem miðar að því að auka aðgengi fólks með margs konar bakgrunn að Hafnarborg með því að bjóða gesti velkomna á ólíkum tungumálum. Viðburðurinn er samstarf Hafnarborgar og samtakanna GETU sem með fjölbreyttum viðburðum og félagsstarfi leitast við að stuðla að inngildingu og jákvæðri fjölmenningu. Verkefnið er styrkt af safnasjóði.

Marie Vesela er listkennari frá Prag, Tékklandi, en hún stofnaði árið 2023 Reykjavík Collage Club (www.rvkcollageclub.com). Hún leggur áherslu á milda og opna nálgun og hvetur alla til að finna sína eigin leið inn í sköpunina, þar sem könnun og gleði skipta meira máli í ferlinu en sjálf lokaniðurstaðan.

Anne Rombach er þýsk listakona sem býr og starfar á Íslandi. Hún nam ljósmyndun við Listaakademíuna í Leipzig og lauk MA-gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands, þar sem hún stundar nú framhaldsnám í „Listum og velferð“.

Ábendingagátt