Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Sunnudaginn 14. desember kl. 13-15 bjóðum við gestum að koma saman í fjöltyngdri listasmiðju þar sem þátttakendur munu búa til stórt „teppi“ úr pappa en þá munu þátttakendur skiptast á að leggjast á pappaörkina meðan annar gerir útlínuteikningu af líkamanum með skærum pastelkrítum. Allir geta síðan skreytt útlínurnar með mynstrum og litum sem endurspegla ólíka persónuleika. Þegar fleiri form bætast við breytist pappinn svo í líflega mynd af líkömum í mismunandi stærðum, stellingum og litum.
Litateppið verður tákn um þá samveru og gleði sem einkennir hátíðirnar. Þá býður smiðjan tækifæri til sköpunar, samvinnu, aukinnar líkamsvitundar og virðingar fyrir fjölbreytileikanum í öllum sínum myndum, þar sem börn og fullorðnir sjá sig sem hluta af sameiginlegu listaverki. Tungumál smiðjunnar eru spænska, íslenska, enska og þýska, undir leiðsögn listamannanna Hugos Llanes og Anne Rombach.
Við munum einnig smakka ljúffengan mexíkóskan ávaxtadrykk og prufa ýmsa skemmtilega leiki, auk þess sem boðið verður upp á smákökur sem gætu jafnvel þurft smá skreytingu…!
Hugo Llanes (f. 1990) er mexíkóskur listamaður, búsettur í Reykjavík, sem styðst við ólíka miðla í listsköpun sinni, svo sem gjörninga og innsetninga. Hugo er með MA-próf í myndlist frá Listaháskóla Íslands.
Anne Rombach er þýsk listakona sem býr og starfar á Íslandi. Hún nam ljósmyndun við Listaakademíuna í Leipzig og lauk MA-gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands, þar sem hún stundar nú framhaldsnám í „Listum og velferð“.
Á mínu máli er viðburðaröð sem miðar að því að auka aðgengi fólks með margs konar bakgrunn að Hafnarborg með því að bjóða gesti velkomna á ólíkum tungumálum. Viðburðurinn er samstarf Hafnarborgar og GETU – samtaka sem með fjölbreyttum viðburðum og félagsstarfi leitast við að stuðla að inngildingu og jákvæðri fjölmenningu. Verkefnið er styrkt af safnasjóði.
Smiðjan fer fram á jarðhæð safnsins og er opin öllum aldurshópum. Engrar fyrri kunnáttu í listsköpun er krafist en börn skulu vera í fylgd með foreldri eða forráðamanni. Eins og alltaf er þátttaka í smiðjum sem og aðgangur að sýningum safnsins gestum að kostnaðarlausu.
Sunnudaginn 14. desember kl. 13-15 bjóðum við gestum að koma saman í fjöltyngdri listasmiðju þar sem þátttakendur munu búa til…