Skákdeild Hauka startar aftur barnastarfi fyrir byrjendur á grunnskólaaldri þriðjudaginn 4. apríl. Kennt verður apríl/maí og byrjar svo aftur í haust. Miðað er við að nemendur kunni mannganginn. Kenndar verða byrjanir, endatöfl og taktík fyrir byrjendur. Kennt verður í Íþróttamiðstöð Hauka á Ásvöllum á þriðjudögum á milli kl 17-18.30. Kennari er Jóhann Arnar Finnsson.

Skráning og fyrirspurnir fara fram í gegnum netfangið: haukarskak@simnet.is

Skákdeild Hauka

Ábendingagátt