Á Bleika deginum eru landsmenn allir hvattir til að vera bleikir – fyrir okkur öll. Bera bleiku slaufuna, klæðast bleiku og lýsa skammdegið upp í bleikum ljóma svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein finni stuðning okkar og samstöðu.

Hafnarfjörður er baðaður í bleikum ljósum og ljóma þessa dagana og hvetur Hnarfjarðarbær  íbúa; Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til að taka bleikan göngutúr í fallegu haustveðrinu.

Hönnuðir Bleiku slaufunnar í ár eru listaparið Tanja Levý og Jökull Jónsson. Slaufan varð til samhlíða krabbameinsmeðferð Tönju og veitir einstaka innsýn í ferlið þegar krabbamein kollvarpar tilverunni.

  • Bleiki dagurinn er miðvikudaginn 21. október.

Ýmsar hugmyndir- heima og að heiman

  • Bleikt morgunkaffi
  • Bleikur hádegisverður
  • Skreyta vinnustaðinn
  • Klæðast einhverju bleiku
  • Hafa verðlaun fyrir fatnað og skreytingar

Sendið sögur og myndir

Krabbameinsfélagið hvetur okkur öll til að senda sér skemmtilegar, bleikar myndir af sér og vinahópum eða vinnufélögum á samfélagsmiðla og merkja #bleikaslaufan

Árverknisátak gegn krabbameinum

Bleikur október er árlegi árverknistími tileinkaður baráttunni gegn krabbameinum í konum.

Verum öll bleik á Bleika deginum 2026!

Ábendingagátt