Brot // Áróra DeTrix & Toggi Cilia
Þessi sýning er samsett úr brotum: myndum, minningum og endurteknum táknum sem birtast í ólíkum miðlum. Málverk, klippimyndir og vídeóverk…
Þessi sýning er samsett úr brotum: myndum, minningum og endurteknum táknum sem birtast í ólíkum miðlum. Málverk, klippimyndir og vídeóverk mynda eitt samfellt rými þar sem mörkin milli hins persónulega og hins ímyndaða eru óljós. Í verkunum mætast dýr, manneskjur og grímur í draumkenndum aðstæðum. Þau virka bæði sem vernd og ógn, sem staðgenglar fyrir tilfinningar sem erfitt er að nefna beint. Barnsleg form og mjúk litasamsetning standa andspænis myrkari undirtónum, einangrun, sekt, löngun og óöryggi Textabrot eru órjúfanlegur hluti af myndmálinu. Þau birtast ekki sem skýringar heldur sem brotakenndar hugsanir, setningar sem virðast rifnar úr innra samtali. Í stað þess að leiða áhorfandann áfram opna þau fyrir óvissu og bil. Hljóðrás sýningarinnar tengir saman miðlanna. Upplestrar, tónlist og hljóð flæða í gegnum rýmið og skapa samfellu þar sem verkin hætta að vera stök og verða að ástandi. Áhorfandinn er ekki leiddur eftir fyrirfram ákveðinni frásögn heldur fær að ráfa um, staldra við og upplifa.
—————-
Áróra Sif er myndlistarkona sem hefur starfað sjálfstætt á íslenskum vettvangi frá unga aldri. Hún hélt sína fyrstu einkasýningu árið 2009 á Kaffi Hljómalind á meðan hún var í listnámi við FB og lauk síðar námi þaðan árið 2021. Á milli þess þróaði hún sig í tónlist og fatahönnun samhliða myndlistinni, sem hefur mótað fjölbreytta og tilraunakenndar nálgun hennar. Í verkum sínum fjallar hún um mannlegt og andlegt ástand og vinnur út frá sálfræðilegum hugtökum og persónulegri reynslu. Hún skoðar hvernig áföll og upplifanir hafa áhrif á skynjun og viðbrögð og lítur á raunveruleikann sem persónulega túlkun frekar en fastmótaða staðreynd. Áróra vinnur mikið með úrklippur úr bókum og tímaritum sem hún sameinar fundnu efni, textíl, málningu, stenslum og rafmagnsvírum sem hún mótar í lífrænar formgerðir. Hún hefur á undanförnum árum einbeitt sér að mixed media og hélt nýverið samsýningu með Togga Cilia í Núllinu
Toggi Cilia er myndlistarmaður og ljóðskáld sem hefur verið virkur í íslensku listalífi síðastliðin sex ár. Listin hefur fylgt honum frá barnæsku; pensillinn hefur alltaf verið innan seilingar svo langt sem hann man, og orð hafa verið jafn sjálfsögð og litir. Hann lærði teiknimyndagerð um tíma en lauk ekki náminu og valdi að móta sína eigin leið. Faðir hans, myndlistarmaðurinn Victor G. Cilia, gaf honum snemma tækifæri til að læra og spreyta sig á ólíkum listformum þó einna helst myndlist. Toggi hefur haldið sýningar, meðal annars í Litla Gallerý og Nullið, þar sem hann hefur þróað persónulega og beinskeytta listræna rödd – bæði á striga og í ljóðaformi.
Sérstök sýningaropnun verður fimmtudaginn 26. febrúar frá 18:00-21:00 og þú ert velkomin !
Aðrir opnunartímar:
Fös. 27. feb 13:00 – 18:00
Lau. 28. feb 13:00 -17:00
Sun. 1. mar 14:00 – 17:00
LG // Litla Gallerý er styrkt af Menningar og ferðamálanefnd
Hafnarfjarðarbæjar vegna viðburðarins
—————————–
Fragments is an exhibition built from fragments: images, memories, and recurring symbols that appear across different media.Paintings, collages, and video works form a shared space where the boundaries between the personal and the imagined remain deliberately unstable. Animals, human figures, and masks inhabit dreamlike settings. They operate both as protection and as threat — stand-ins for emotions that resist direct language. Childlike imagery and soft color palettes coexist with darker undercurrents of isolation, guilt, desire, and unease. Text fragments are embedded within the visual works. They do not explain what is seen but interrupt it, sentences that feel torn from an inner dialogue. Meaning is suggested, then withheld. The exhibition’s soundscape binds the media into a single experience. Spoken text, music, and ambient sound move through the space, allowing individual works to dissolve into a shared state. The viewer is not guided through a fixed narrative but invited to wander, pause, and assemble their own connections.
—————-
Áróra Sif is a visual artist who has worked independently within the Icelandic art scene from a young age. She held her first solo exhibition in 2009 at Kaffi Hljómalind while studying art at FB, and later completed her studies there in 2021. During that period, she also developed her practice in music and fashion design alongside her visual art, shaping her diverse and experimental approach. In her work, she explores the human and psychological condition, drawing from psychological concepts and personal experience. She examines how trauma and lived experiences influence perception and reaction, viewing reality as a personal interpretation rather than a fixed truth. Áróra works extensively with cutouts from books and magazines, combining found materials with textiles, paint, stencils, and electrical wires that she shapes into organic forms. In recent years she has focused on mixed media and recently held a joint exhibition with Toggi Cilia at Núllið.
Toggi Cilia is a visual artist and poet who has been active in the Icelandic art scene for the past six years. Art has followed him since childhood; a paintbrush has always been within reach for as long as he can remember, and words have been as natural to him as color. He studied animation for a period but did not complete the program, choosing instead to carve his own path. His father, the visual artist Victor G. Cilia, gave him early opportunities to learn and experiment across different artistic disciplines, though primarily in visual art. Toggi has held exhibitions, including at Litla Gallerý and Núllið, where he has developed a personal and direct artistic voice — both on canvas and in poetry.
There will be a special exhibition opening on Thursday, February 26th from 18:00-21:00 and you are welcome!
Other opening hours
Fri 27th Feb 13:00 – 18:00
Sat 28th Feb 13:00 – 17:00
Sun 1st Mar 14:00 – 17:00
LG // Litla Gallerý is sponsored by the Culture and Tourism Committee of Hafnarfjörður for this event.