Hin árlega dorgveiðikeppni við Flensborgarhöfn verður haldin miðvikudaginn 28.júní frá kl. 13:30-15:00. Keppnin er opin öllum börnum á aldrinum sex til tólf ára.

Miðvikudaginn 28. júní er áætlað að halda hina árlegu dorgveiðikeppni á Flensborgarbryggju fyrir hafnfirsk börn á aldrinum sex til tólf ára. Keppnin byrjar um kl. 13:30 og veiða krakkarnir til kl. 14:30. Verðlaun eru svo veitt í kjölfarið.

Keppt verður í þremur flokkum – flestu fiskarnir, stærsti fiskurinn og furðufiskur 2023.

Hægt verður að fá færi og beitu á staðnum.

Starfsfólk Hafnarfjarðarbæjar sér um gæslu á svæðinu og Siglingaklúbburinn Þytur sér um gæslu af sjó.

 

Öll áhugasöm á aldrinum 6-12 ára eru hvött til þátttöku!

Ábendingagátt