Er hjólið klárt fyrir sumarið?
Hjólreiðafélagið Bjartur í samvinnu við Heilsubæinn Hafnarfjörð verður með viðgerðardag þar sem Hafnfirðingum býðst að koma með hjól til léttrar yfirhalningar sér að kostnaðarlausu. Tilvalið fyrir þá sem ætla að taka þátt í Hjólað í vinnuna
Viðgerðarfólk á vegum félagsins mun :
- Stilla bremsur
- Stilla gíra
- Þrýfa og smyrja keðjur
- Laga loftlaus dekk
- Hjálpa til við að stilla hjálma
- Veita ráðleggingar ef hjólið þarf frekari þjónustu
Öll velkomin!