Framfarabók mánaðarins er Samastaður í tilverunni eftir Málfríði Einarsdóttur, rituð árið 1977. Þessi bók er ekki ævisaga, og varla heldur endurminningar í venjulegum skilningi, en höfundurinn framkallar í huga lesandans þennan samastað sem hún átti sér í tilverunni, hvort sem hann var í Bæjarsveit í Borgarfirði, Reykjavík, Kaupmannahöfn eða annars staðar. Umhverfi, þjóðlífi og fólki er hér lýst af lifandi nærfærni og þeim stílþrótti sem fáum er gefinn.

Ábendingagátt