Fróðleiksmolar Byggðasafns Hafnarfjarðar
Byggðasafn Hafnarfjarðar stendur í vetur fyrir fyrirlestraröðinni „Fróðleiksmolar Byggðasafns Hafnarfjarðar“. Fróðleiksmolarnir verða í boði síðasta miðvikudag í hverjum mánuði í vetur og hefjast kl. 20:00 í Bookless Bungalow, Vesturgötu 32.
Fyrirlesarar
Miðvikudagurinn 14. desember kl. 20:00.
Gunndís Eva Baldursdóttir sagnfræðingur:
Þannig er þetta (ráði hver sem getur) : Dagbækur Finnboga Bernódussonar.
Svavar Benediktsson sagnfræðingur:
Kosningavél og útbreiðslustarfsemi Sjálfstæðisflokksins 1929–1971.
Allir velkomnir og ókeypis aðgangur.