Byggðasafn Hafnarfjarðar stendur fyrir fyrirlestraröðinni Fróðleiksmolar sem haldnir verða síðasta miðvikudag í hverjum mánuði í vetur.
Fyrstu Fróðleiksmolar ársins verða haldnir miðvikudagskvöldið 26. febrúar kl. 20:00 í Bookless Bungalow, Vesturgötu 32.
Dagskrá kvöldsins:
Margrét Björg Birgisdóttir sagnfræðingur:
Sagan á sviðinu. Miðlun Íslandssögu 18. aldar á leiksviði og áhrif ríkjandi söguskoðana á sviðsetningar þeirra 1967–2010.
Björn Pétursson bæjarminjavörður Hafnarfjarðar:
Hansakaupmenn í Hafnarfirði
Við hlökkum til að sjá ykkur í Bookless Bungalow,
Vesturgötu 32 Hafnarfirði