Fróðleiksmolar Byggðasafns Hafnarfjarðar í nóvember verða með jólabrag.
Dagskrá:
Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðingur heldur erindið „Grýla og hennar hyski: Lungnaslettir, Lampaskuggi og Flotnös“
Jólin eru magnaður tími. Þá fara allskonar þjóðsagnaverur á kreik, kýr tala mannamál, huldufólk heldur veislur í mannabústuðum og tröll koma niður úr hellunum sínum. Verst af öllum voru þó auðvitað gömlu íslensku jólafólin.
Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðingur segir frá íslenska jólahyskinu, Grýlu sjálfri, Leppalúða og jólakettinum, en einnig minna þekktum persónum, svo sem fyrri eiginmönnum Grýlu og jólasveinunum Lungnasletti, Lampaskugga og Flotnös. Fjölskylda Grýlu þótti ekki mjög frýnileg hér áður fyrr og vöktu þau mikinn ótta og óhug hjá fólki, enda var Grýla hryllilega mannæta og jólasveinarnir voru til vandræða hvar sem þeir komu. Sagt verður frá óhugnalegum sögum og þjóðtrú sem umlykur þessi fyrirbæri. Auk þess sem verður gerð grein fyrir því hvernig hegðun, atferli og framkoma jólasveinanna hefur breyst í gegnum árin og hvað varð til þess að jólasveinarnir tóku upp betri siði. Auk þess sem því verður velt upp hvaða breytingar eru að verða á hefðinni í dag og gætu orðið í framtíðinni.
Allir velkomnir og ókeypis aðgangur.