Komdu með í göngu!
Þráinn Hauksson, landslagsarkitekt, leiðir göngu um Víðistaða svæðið og segir frá sögu, hönnun og möguleikum á þessu vinsæla útivistarsvæði. Gengið verður frá bílastæðinu við Víðistaðakirkju kl.20. Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir!
Menningar- og heilsugöngur 2023
Í sumar er boðið upp á bæjargöngur með leiðsögn alla miðvikudaga. Göngurnar eru samstarfsverkefni Bókasafns Hafnarfjarðar, Byggðasafns Hafnarfjarðar, Hafnarborgar og Heilsubæjarins Hafnarfjarðar. Flestar göngur taka um klukkustund.
Komdu út að ganga í sumar!