Áshildur ætlar að leiða slökunarstund með tónum gongsins á ströndinni við Hvaleyrarvatn. Allir koma sér fyrir eftir hentugleika, sitjandi eða liggjandi, og njóta saman kyrrðar, náttúruhljóða og tíðni hljóðbylgja gongsins. Stundin tekur um 45 mínútur og fer vitaskuld aðeins eftir veðri og vindum, en gott er að hafa með sér jógadýnu, teppi eða svefnpoka og púða. Allt sem lætur þér líða vel í útislökun á Íslandi 🙂

Stundin er fyrir alla sem hafa áhuga á slökun og samveru í náttúrunni undir tónum gongsins. Gongið heitir Deep Ocean 8 og er 42″ að stærð, smíðað úr títaníumi og hefur einstaklega sterkan og fallegan hljómburð.

Nánari upplýsingar á sjalfsthekking.is og ashildurhlin@gmail.com

Ábendingagátt