Miðvikudaginn 23. september kl. 19:00 – Gengið frá Víðistaðakirkju 

Komdu með í HamingjuGöngu um Víðistaðasvæðið með Jónatani Garðarssyni á Hamingjudögum í Hafnarfirði. 

Jónatan leiðir þátttakendur um svæðið og segir frá sögu Víðistaða, fólkinu sem þar bjó og starfaði, og þeim fjölbreyttu hugmyndum og atburðum sem hafa mótað þetta merka svæði í gegnum tíðina. Á leiðinni fáum við að kynnast vel kunnuglegu umhverfi frá nýju sjónarhorni og heyra sögur sem margir hafa ekki áður heyrt. 

Gangan hentar öllum aldurshópum og börn eru sérstaklega velkomin. Við hvetjum þátttakendur til að taka með sér höfuðljós eða vasaljós til að gera kvöldgönguna enn skemmtilegri og ævintýralegri. 

Göngum saman um Víðistaði, kveikjum á ljósunum og uppgötvum sögurnar sem leynast allt í kringum okkur.  

Ábendingagátt