Endurskoðun aðalskipulags Hafnarfjarðar 2025 – 2040, opinn kynningarfundur og vinnustofur
Í tengslum við endurskoðun aðalskipulags Hafnarfjarðar verður haldinn opinn kynningarfundur að Ásvöllum, íþróttamiðstöð Hauka, þriðjudaginn 11. nóvember kl. 17.
Á þessu stigi kynningarferlisins er lögð fram tillaga að skipulagsáformum til framtíðar sem gefur nokkuð skýra mynd af því hvernig uppbyggingu í Hafnarfirði verður háttað næstu ár. Í kjölfarið verða haldnar vinnustofur þar sem hægt verður að kynna sér nánar mismunandi viðfangsefni.
Vinnustofurnar verða haldnar í Hafnarborg þar sem ráðgjafateymið mun kynna eftirfarandi skipulagsverkefni og leiða fundina:
- 13. nóvember – miðbær og íbúðabyggð
- 17. nóvember – upplandið og Krýsuvík
Vinnustofurnar byrja kl. 17 og má gera ráð fyrir að þær verði 1.5 klst. Gengið er inn frá Strandgötu. Vakin er athygli á því að tillaga á vinnslustigi er í kynningu til 24. 11. 2025 og má nálgast hana á skipulagsgatt.is.