Komdu heim í jólabæinn Hafnarfjörð á aðventunni

Hafnarfjörður býður jólin velkomin með sínu árlega jólaþorpi fullu af gleði, gómsætum bitum og skemmtilegum jólavarningi, ljósadýrð og ævintýraveröld í Hellisgerði, Hjartasvelli og svo miklu fleiru.

Jólaþorpið á Thorsplani í Hafnarfirði er opið allar helgar frá og með 17. nóvember; föstudaga frá kl. 17-20, laugardaga og sunnudaga frá kl. 13-18 til jóla og til kl. 21 á Þorláksmessu. Í Jólaþorpinu iðar allt af lífi og fjöri fyrir jólin og fagurlega skreyttu hafnfirsku jólahúsin eru fyrir löngu orðin landsþekkt fyrir ýmisskonar spennandi gjafavöru, sælkerakrásir, handverk og hönnun. Þar er tilvalið að leita að hinni fullkomnu jólagjöf á meðan þú nýtur gómsætra veitinga sem ylja að innan. Jólasveinarnir koma í heimsókn á laugardögum og Grýla verður á vappi um bæinn á sunnudögum. Strandgata breytist í göngugötu á meðan Jólaþorpið er opið.

Lauflétt dagskrá helgarinnar:

  • Föstudagur frá kl. 20-23. Jóla-karaoke í Hamrinum, ungmennahúsi Hafnarfjarðar
  • Laugardagur frá kl. 13-18. Kjötkompaní býður í ljúfengt jólasmakk í upplifunarhúsinu á Thorsplani 🏘
  • Sunnudagur frá kl. 13-18. Garnbúð Eddu með sýnikennslu og ráðgjöf auk þess að vera með val valdar vörur til sölu. Hið vinsæla EasyCheese verður til sölu og hægt að smakka gómsæta osta 🌟
  • Sunnudagur frá kl. 13-18. Osta- og smjörsalan verður á svæðinu og býður gestum og gangandi uppá smakk ✨
  • Sunnudagur kl.16. Fallega skreytt heimili og fyrirtæki í Hafnarfirði verða verðlaunuð á sviðinu rétt áður en jólasamsöngur með Guðrúnu Árnýju hefst kl.16 á Thorsplani


Fimmtudagur – laugardagur frá kl. 17-22.
Jólahjarta Hafnarfjarðar í aðventuhátíðartjaldi á bak við Bæjarbíó. Tilvalið fyrir mömmur og pabba, ömmur og afa og vinahópa að mæta á svæðið og fá sér matarbita og jóladrykk með.

—————————
Opið í Hafnarborg frá kl. 12-17 um helgina
Opið á Byggðasafni Hafnarfjarðar frá kl. 11-17 um helgina
Opið á Bókasafni Hafnarfjarðar frá kl. 11-15 laugardag
Hjartasvellið er opið – https://hfj.is/hjartasvellid
Opnunartími sundlauga – https://hfj.is/sund

Við erum jólabærinn Hafnarfjörður

Ábendingagátt