Jólabærinn 2026 – Undirbúnings- & upplýsingafundur
Jólabærinn Hafnarfjörður Undirbúnings- & upplýsingafundur Föstudaginn 18. september Nýja bókasafni Hafnarfjarðar í Firði, 2.hæð | kl.09:00 – 10:30 Hafnarfjörður breytist…
Jólaþorpið í Hafnarfirði opnaði um síðastliðna helgi þegar ljósin voru tendruð á Cuxhaven-jólatrénu á nýjum stað í jólabænum! Jólaþorpið iðar allt af lífi og fjöri fyrir jólin og fagurlega skreyttu hafnfirsku jólahúsin eru fyrir löngu orðin landsþekkt fyrir ýmisskonar spennandi gjafavöru, sælkerakrásir, handverk og hönnun. Þar er tilvalið að leita að hinni fullkomnu jólagjöf á meðan þú nýtur gómsætra veitinga sem ylja að innan. Jólasveinarnir koma í heimsókn um helgar og Grýla verður einnig á vappi um bæinn á sunnudögum. Strandgata breytist í göngugötu á meðan Jólaþorpið er opið.
————————————————————–
Jólaþorpið á Thorsplani í Hafnarfirði verður opið allar helgar frá og með 15. nóvember; föstudaga frá kl. 17-20, laugardaga og sunnudaga frá kl. 13-18 til jóla og til kl. 21 á Þorláksmessu. Kaffihúsið í Hellisgerði verður opið á opnunartíma Jólaþorpsins og alltaf til kl. 20 þau kvöld. Sérstök athygli er vakin á því að Hjartasvellið og tívolí við Venusarhúsið Strandgötu 11 eru opin allar helgar fram að jólum.
Fimmtudaga – laugardaga frá kl. 17-22. Jólahjarta Hafnarfjarðar í aðventuhátíðartjaldi á bak við Bæjarbíó. Tilvalið fyrir mömmur og pabba, ömmur og afa og vinahópa að mæta á svæðið og fá sér matarbita og jóladrykk með. Hægt verður að kaupa Jóla-humarsúpu Tilverunnar frá kl. 17 -20 alla opnunardagana.
Taktu þátt í jólaratleik í Jólaþorpinu og finndu sveinana þrettán, Grýlu, Leppalúða og jólaköttinn! Leikurinn gengur út á að finna fígúrurnar þrettán á ljósastaurum í miðbænum. Og hvernig spilum við leikinn? Jú, hjá hverjum staur er spjald með nafni jólasveinsins og QR kóði. Hann á að skanna inn til að finna réttan bókstaf sem skrifa á niður og safna saman. Stafirnir mynda svo stutta setningu sem skila þarf inn rafrænt. Hjálparblað má fá á Bókasafninu, Byggðasafninu, Hafnarborg og í gróðurhúsunum á Thorsplani eða sækja hér. Hægt verður að taka þátt út 22. desember. Veitt verða þátttökuverðlaun á Þorláksmessu. Sjá nánar hér.
Jólabærinn og Jólaþorpið iða allt af lífi og fjöri fyrir jólin og fagurlega skreyttu hafnfirsku jólahúsin á Thorsplani eru fyrir löngu orðin landsþekkt fyrir ýmisskonar spennandi gjafavöru, sælkerakrásir, handverk og hönnun. Þar er tilvalið að leita að hinni fullkomnu jólagjöf á meðan notið er gómsætra veitinga sem ylja að innan. Jólasveinarnir koma í heimsókn á laugardögum og Grýla verður á vappi um bæinn á sunnudögum. Strandgata frá Lækjargötu að Linnetstíg breytist í göngugötu á meðan Jólaþorpið er opið. Er það gert til að dreifa umferð gangandi vegfaranda um miðbæinn og tryggja öryggi góðra gesta
Við erum jólabærinn Hafnarfjörður