Bókasafn Hafnarfjarðar fagnar myrkum skáldsögum á safnanótt!
Krimmar við Kertaljós er rómantískur og (ó)huggulegur bókmenntaviðburður þar sem að Arndís Þórarinsdóttir leiðir spjall við glæpagoðsagnirnar Ragnheiði Gestsdóttur og Jónínu Leósdóttur ásamt nýliða ársins í sakamálum, Skúla Sigurðssyni.
Þar verður skeggrætt um myrkari hliðar bókmenntanna, þó misgráir séu skuggarnir, og mörgum hliðum þessarar víðu og elskuðu stefnu sem Íslendingar dýrka, gerð skil. Svo verðum við með nokkur sakamál fyrir gesti að leysa, veitingar, og auðvitað saxafón, – er það yfirhöfuð krimmi ef er enginn saxófónn?
Ábendingagátt