Græn skilaboð til stjórnenda og starfsfólks fyrirtækja í Hafnarfirði

Hafnarfjarðarbær hefur gert samstarfssamning við Laufið, fyrstu grænu íslensku upplýsingaveituna. Samningurinn felur í sér aðgang að hugbúnaði Laufsins fyrir skóla og stofnanir sveitarfélagsins. Auk þess munu sjálfbærniráðgjafar Laufsins annast fræðslu og veita almenna ráðgjöf til handa starfsfólki sveitarfélagsins varðandi sjálfbærni. Samhliða útvegar Hafnarfjarðarbær Laufinu aðstöðu fyrir kynningarfundi með áhugasömum hafnfirskum fyrirtækjum. Rík áhersla er lögð á að fá fyrirtækin í Hafnarfirði með í þessa grænu vegferð enda eru umhverfismál og sjálfbærni samstarfsverkefni alls samfélagsins. Laufið, býður fyrirtækjum upp á hagnýta verkfærakistu sem stuðlar að sjálfbærri þróun íslensks atvinnulífs. Skipulagðir hafa verið kynningarfundir fyrir hafnfirsk fyrirtæki í Apótekinu í Hafnarborg að Strandgötu 34:

  • Miðvikudagurinn 7. desember kl. 9

Á fundinum verður meðal annars fjallað um:

  • Mikilvægi þess að fyrirtæki hefji vegferð að umhverfisvænni fyrirtækjarekstri
  • Þjónustu Laufsins í þeirri vegferð með skilvirku stjórnendakerfi og fræðslu fyrir allt starfsfólk
  • Ávinning þess að vera í Laufinu
  • Framlag fremstu fyrirtækja heims í sjálfbærnimálum

Um er að ræða áhugaverðan fund sem tekur um 1 klst. Á upplýsinga- og skráningarsíðu um verkefnið má sjá stutt myndband um þá þjónustu sem Laufið veitir íslenskum fyrirtækjum. Öll áhugasöm eru hvött til að skrá sig.

Upplýsingar og skráning

Ábendingagátt