Kynningarfundur í Hvaleyrarskóla 11. september kl. 16
Í september verður tekinn inn nýr hópur þátttakenda hjá Janusi heilsueflingu í Hafnarfirði. Af því tilefni verður kynningarfundur mánudaginn 11. september kl. 16 í Hvaleyrarskóla. Hægt er að skrá sig með tölvupósti á netfangið: skraning@janusheilsuefling.is og mikilvægt að taka fram að um sé að ræða skráningu á kynningarfundinn í Hafnarfirði. Fyrir þau sem þegar eru ákveðin að taka þátt og vilja sleppa kynningarfundi má senda upplýsingar um nafn, kennitölu, heimilisfang og símanúmer á netfangið: skraning@janusheilsuefling.is
Hafnarfjarðarbær og starfsfólk Janusar heilsueflingar hvetja öll áhugasöm til að mæta. Sérstök athygli er vakin á því að mæting á kynningarfund er ekki binding til þátttöku.
Upplýsingar um Janus heilsueflingu:
- Sími: 546-1232
- Vefur: www.janusheilsuefling.is
- Facebook: www.facebook.com/janusheilsuefling