Allt í blóma // Rósa Sigurbergsdóttir
Þessi sýning er afrakstur nokkurra ára vinnu og efniviðurinn kemur úr öllum áttum. Útivist og umhverfið hafa alla tíð verið…
Leikhópurinn Lotta fagnar tuttugu ára afmæli í ár og setur af því tilefni upp söngleikinn Litaland um allt land í sumar! Eins og alltaf býður hópurinn upp á skemmtun fyrir alla fjölskylduna þar sem saman koma söngur, gleði, dans og húmor fyrir unga sem aldna.
Sýningin er um klukkustund að lengd og fer fram utandyra. Við hvetjum gesti til að klæða sig eftir veðri, taka með sér nesti, teppi og góðan ævintýraanda. Einnig er gott að hafa símann vel hlaðinn, því að sýningu lokinni gefst áhorfendum kostur á að taka mynd með sinni uppáhalds ævintýrapersónu.
Miða má nálgast hér á Tix.is
Leikstjórn: Sigsteinn Sigurbergsson, Þórunn Lárusdóttir
Leikarar: Andrea Ösp Karlsdóttir, Anna Bergljót Thorarensen, Rósa Ásgeirsdóttir, Stefán Benedikt Vilhelmsson, Sumarliði V Snæland Ingimarsson