Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Hafnarborg býður grunnskólabörnum í Hafnarfirði að koma og taka þátt í skapandi listasmiðjum á vegum safnsins í vetrarfríi dagana 20. og 21. október. Smiðjurnar eru opnar öllum börnum og fjölskyldum þeirra sem vilja láta sköpunargleðina flæða og njóta þess að vinna með fjölbreyttan efnivið. Smiðjurnar verða hvor með sínu sniðinu, svo velkomið er að taka þátt annan eða báða dagana.
Hrekkjavöku-taupokasmiðja Mánudagur 20. október kl. 13-15 Í þessari skapandi smiðju fá þátttakendur tækifæri til að leika sér með litina og hanna sinn eigin taupoka. Pokann má skreyta, teikna á eða mála eftir eigin hugmyndum og getur hann svo nýst á hrekkjavökunni – þegar farið er út á stjá til að safna gotteríi eða gera grikk – eða í öðrum haustverkefnum.
Hinn fjöltyngdi skógarskóli (Escola florestal) Þriðjudagur 21. október kl. 13-15 Listamennirnir Fernanda Fajardo og Anne Rombach leiða listasmiðju fyrir fjölskyldu á íslensku, portúgölsku, spænsku, ensku og þýsku. Þátttakendur sækja innblástur í skóginn og skapa verur úr laufum, greinum og öðrum náttúrulegum efnivið í anda haustsins. Smiðjan er haldin í tengslum við viðburðadagskrá safnsins Á mínu máli.
Smiðjurnar fara fram í Apótekinu á fyrstu hæð safnsins en mælst er til að börn mæti í fylgd fullorðinna. Eins og venjulega er þátttaka í listasmiðjum gestum að kostnaðarlausu, líkt og aðgangur að sýningum safnsins. Verið hjartanlega velkomin.
Föstudaginn 5. desember kl. 18 mun söngkonan Silva Þórðardóttir koma fram á næstu Síðdegistónum í Hafnarborg ásamt þeim Þorgrími Jónssyni…
Laugardaginn 6. desember fyllist Hafnarborg af söng og hátíðaranda en þá koma saman ýmsir kórar úr Hafnarfirði og flytja jólalög fyrir…
Sunnudaginn 7. desember kl. 14 mun Una Björg Magnúsdóttir, myndlistarmaður, taka á móti gestum og fjalla um einkasýningu sína, Fyllingu, ásamt Þórdísi…