Fimmtudaginn 5. nóvember kl. 20:00 verður formlega kveikt á nýrri lýsingu á Norðurgarði við Hafnarfjarðarhöfn. Með því lýkur umfangsmiklu uppbyggingar- og endurbótaverkefni sem staðið hefur yfir á svæðinu undanfarin ár og breytt Norðurgarði í einn glæsilegasta áningarstaðinn við strandstíg bæjarins.
Endurbæturnar hófust með grjótvörnum utan við garðinn og í kjölfarið var hann hækkaður um rúma tvo metra. Á þessu ári hefur garðurinn síðan verið klæddur harðviði og þar komið upp setpöllum og útsýnissvæðum sem bjóða upp á einstakt útsýni yfir höfnina og Faxaflóa. Nýlega lauk einnig frágangi á yfirborði og tengingum við strandstíginn ásamt uppsetningu nýrrar lýsingar á svæðinu og nýju innsiglingarljósi.
Framkvæmdirnar hafa mælst afar vel fyrir meðal bæjarbúa og gesta, enda hefur Norðurgarðurinn á skömmum tíma fest sig í sessi sem vinsæll staður til útivistar, samveru og náttúruupplifunar.
Fjöldi fyrirtækja og sérfræðinga hefur komið að verkefninu og lagt sitt af mörkum til að gera svæðið að þeirri glæsilegu heild sem það er í dag. Þar má nefna Landslag landslagsarkitekta, Batteríið arkitekta, verkfræðistofuna Strending, smíðafyrirtækið Galdraöfl, rafverktakann RAFX, ljósahönnunarfyrirtækið Liska, Vélsmiðju Konráðs Jónssonar, verktakafyrirtækin Hagtak og Gröfu og grjót, auk starfsfólks Hafnarfjarðarhafnar og Hafnarfjarðarbæjar sem komið hefur að hönnun, framkvæmdum og uppbyggingu svæðisins.
Hafnarfjarðarhöfn býður bæjarbúa og aðra gesti velkomna á Norðurgarð fimmtudagskvöldið 5. nóvember kl. 20:00 þegar ljósin verða tendruð og svæðið fær sinn fyrsta formlega vetrarbúning. Samkoman markar tímamót í þróun hafnarsvæðisins og lok mikilvægs uppbyggingarverkefnis sem mun nýtast bæjarbúum og gestum um ókomin ár
