Brot // Áróra DeTrix & Toggi Cilia
Þessi sýning er samsett úr brotum: myndum, minningum og endurteknum táknum sem birtast í ólíkum miðlum. Málverk, klippimyndir og vídeóverk…
Ljósmyndaáhugi Svavars G. Jónssonar hefur nú leitt af sér að hann á vel á sjötta hundrað filmuvéla, sú elsta frá árinu 1896. Hann ætlar að sýna safnið á veitingastaðnum Ban Kúnn á Safnanótt 2025, þann 7. febrúar og segja sögur.
„Upphaf þessa safns má rekja til „ljósmyndadellu“ sem ég fékk um fermingu! Já, það eru að verða 60 ár síðan, svo það kennir ýmissa grasa í safninu,“ segir Svavar. Ljósmyndavélarnar hans eru frá árinu 1896 til dagsins í dag. Þar á meðal myndavélin sem hann keypti fyrir fermingarpeningana sína.