Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Loftslagsdagurinn 2023 fer fram 4. maí í Hörpu og beinu streymi. Takið tímann frá!

Umhverfisstofnun stendur fyrir Loftslagsdeginum ásamt samstarfsstofnunum. Þar koma saman margir af helstu sérfræðingum þjóðarinnar í loftslagsmálum og útskýra umræðuna á mannamáli! Dagskráin byggist á fjölbreyttum erindum, pallborðsumræðum, áhugaverðum hugvekjum, sýningum og tækifærum til að blanda geði. Áhersla verður lögð á gagnvirka þátttöku áhorfenda.

Loftslagsdagurinn er hugsaður fyrir:

  • Almenning
  • Stjórnvöld
  • Atvinnulífið
  • Fjölmiðla
  • Vísindasamfélagið
  • Nemendur
  • Öll áhugasöm um loftslagsmál

Skráning hefst innan tíðar. Takið tímann frá og sjáumst í Hörpu 4 maí!

Vefur Loftslagsdagsins: www.loftslagsdagurinn.is
Viðburðurinn á Facebook

Ábendingagátt