Leikskólalífið – upplýsingafundur fyrir aðstandendur
Upplýsingafundur fyrir foreldra og forráðafólk nýrra leikskólabarna haustið 2026 Mennta- og lýðheilsusvið Hafnarfjarðarbær boðar til upplýsingafundar fyrir foreldra og forráðafólk…
Mannamót Markaðsstofa landshlutanna er árleg ferðakaupstefna sem haldin er af Markaðsstofum landshlutanna.
Mannamót markaðsstofanna er kynningarvettvangur ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni og tækifæri til að koma á fundum fagaðila í greininni.
Markmið og tilgangur viðburðarins er að skapa vettvang þar sem landsbyggðarfyrirtæki fá tækifæri til að kynna sína þjónustu og vöruframboð fyrir ferðaþjónustuaðilum sem staðsettir eru á höfuðborgarsvæðinu. Ísland hefur mikið upp á að bjóða og Mannamót hjálpa til við að mynda tengsl innan ferðaþjónustunnar. Gestum á Mannamótum gefst kostur á kynna sér það sem mismunandi landshlutar eru að bjóða uppá.
Markaðsstofur landshlutanna (MAS) eru sex talsins, á Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi, Austurlandi, Reykjanesi og á Suðurlandi.
Hlutverk þeirra er að samræma markaðs- og kynningarmál í ferðaþjónustu, sjá um útgáfumál, móttöku blaðamanna ásamt beinni markaðssetningu og vinnu við vöruþróun í ferðaþjónustu.
Markaðsstofurnar starfa í samvinnu við fyrirtæki í greininni, ferðamálasamtök, atvinnuþróunarfélög, sveitarfélög og fleiri hagsmunaaðila.
Markaðsstofur landshlutanna starfa með um 900 fyrirtækjum og sveitarfélögum um allt land. Hafnarfjarðarbær er aðili að Markaðsstofu Höfuðborgarsvæðisins.