Þörfin fyrir að gera það sem veitir mér GLEÐI var drifkrafturinn fyrir þessa sýningu.
Á vegferð minni í sjálfsvinnu þá hef ég áttað mig á því hve mikilvægt það er að gefa sér tíma í það sem veitir manni gleði. Samfélagið okkar í dag er á alveg snarólöglegum hraða og við erum svo mörg að díla við sektirnar. Í öllum okkar hlutverkum í amstri dagsins gleymist oft að staldra við og virkilega hugsa um það hvort maður sé að næra sig með því sem veitir mann gleði og ánægju. Hvernig væri að hægja aðeins á og koma þannig í veg fyrir að fá þessar sektir. Við megum ekki gleyma því að staldra við, anda djúpt inn, líta í kringum okkur og líta okkur nær.
Innblástur fyrir þessa sýningu fékk ég úr náttúrunni og sköpuninni. Sköpun er fyrir mér hugleiðsla og hún gefur mér mikla gleðitilfinningu. Litir hafa mikil áhrif á mig, en SVARTUR er minn uppáhalds litur. Svart og Hvítt er ekki bara svart og hvítt. Ég sé mismunandi blæbrigði í svörtum og hvítum lit eins og í öðrum litum. Blóm í öllum regnbogans litum gleðja mig mjög mikið sama hvort þau eru í vasa inni í stofu eða úti í náttúrunni. Áhuga minn á blómum fæ ég meðal annars frá Jóu ömmu minni en hún var mikill fagurkeri og átti mörg falleg blóm, bæði inni í stofu og úti í garði.
Fyrir þessa sýningu langaði mig að vinna með blóm því þau eru með einstaklega falleg lífræn form og línur. Í verkunum tek ég blómin úr sínu náttúrulega umhverfi, færi þau á strigann og vinn þau eftir mínu höfði. Ég leik mér með línur, liti og lífræn form. Til að myndbyggingin verði þægileg og spennandi fyrir augað reyni ég að ná ákveðnu jafnvægi í uppröðun og litasamsetningu. Verkin eru unnin með blandaðri tækni, akríl og penna.
Margrét Jóna Þórhallsdóttir er fædd árið 1976 og ólst upp í Njarðvík. Hún útskrifaðist sem stúdent af mynd- og handmennta braut frá Verkmenntaskólanum á Akureyri árið 1998. Margrét Jóna lauk námi, sem myndmenntakennari frá Kennaraháskólanum árið 2005 og af Hönnunarbraut frá Iðnskólanum í Hafnarfirði árið 2015. Hún hefur unnið sem myndmenntakennari bæði í leik- og grunnskólum. Margrét hefur sótt mörg námskeið í myndlist, nokkur námskeið í olíumálun þar á meðal hjá Þuríði Sigurðardóttur og einnig í blandaðri tækni og pappamassa hjá Söru Vilbergsdóttur.
Árið 2021 hélt hún sína fyrstu einkasýningu einmitt hér í Litla Gallerí og svo stuttu seinna í Gallerí 16. Sýningin ,,Svart/Hvítt – Litríkt” er hennar önnur einkasýning.
Sýningaropnun er 30. nóvember frá 18:00-20:00 og allir velkomnir!
Aðrir opnunartímar:
Föstudagur 1. desember 15:00 – 20:00
Laugardagur 2. desember 13:00 – 18:00
Sunnudagur3. desember 14:00 – 18:00
The need to do what brings me JOY was the driving force behind this exhibition. On my self healing journey I have realized how important it is to make time for what brings you joy. Our society today is going at a very illegal pace and so many of us are dealing with the speeding tickets. In all our roles in our hustle and bustle of the day, we often forget to stop and really think about whether we are nourishing ourselves by doing what brings us joy and satisfaction. How about slowing down a bit and with doing so prevent getting these speeding tickets. We must remember to stop, take a deep breath and look both inward and around us
For this exhibition I got my inspiration from nature and creation. Creating for me is meditation and it gives me a great feeling of joy. Colors affect me deeply but BLACK is my favorite color. Black and White are not just black and white. I see different nuances in black and white as in other colors. Flowers of all the colors of the rainbow make me very happy whether they are in a vase, in my living room or out in nature. I got my affection for flowers, among other things from my grandmother Jóa who had a great appreciation of beauty and had many beautiful flowers, both in the living room and the garden. For this exhibition I wanted to work with flowers because they have exceptionally beautiful organic shapes and lines. In these paintings
I take them from their natural environment, put them on the canvas and work them according to my own style. I play with lines, colors and organic shapes. In order for the image composition to be comfortable and exciting for the eye, I try to achieve a certain balance in arrangement and color combination. The paintings are made with mixed media, acrylic and pen.
Margrét Jóna Þórhallsdóttir was born in 1976 and grew up in Njarðvík. She graduated from Arts college in Verkmenntaskólinn á Akureyri in 1998. She graduated as an Art teacher from the Iceland College of Education in 2005 and from Design Course in Iðnskólinn í Hafnarfirði in 2015. She has worked as an art teacher in both kindergartens and elementary schools. Margrét Jóna has attended many courses in art, several courses in oil painting with Þuríður Sigurðardóttir and also in mixed media and paper-mache with Sara Vilbergsdóttir. In 2021 she held her first solo exhibition in Litla Gallerý and Gallerí 16. This is her second solo exhibition.
Exhibition opening is November 30th from 18:00-20:00 and everyone is welcome!
Other opening hours:
Friday 1st of Desember 15:00 – 20:00
Saturday 2nd of Desember 13:00 – 18:00
Sunday 3rd of Desember 14:00 – 18:00