Menningarviðburður innblásinn af jarðhræringum á Reykjanesi.

Þegar landslag breytist, breytast einnig tengslin okkar við það. Við bjóðum sundgestum í pottaspjall um hvernig breytingar í landslagi móta minningar, frásagnir og hefðir, og ræðum hvað það er sem skiptir okkur mestu máli á tímum umbrota.

Ef þú gætir varðveitt aðeins eina minningu um stað, hefð, eða ást – hvað yrði fyrir valinu? 

Þessi viðburður er hluti af Sundlaugarsumrinu Þjóðminjasafnsins https://www.thjodminjasafn.is/vidburdir/sundlaugasumar-2026  og verður haldinn í þrem laugum:

Þriðjudagur 1. desember · Vesturbæjarlaug

Miðvikudagur 2. desember · Sundlaug Grindavíkur

Fimmtudagur 3. desember · Suðurbæjarlaug

Frá kl. 16 til lokunar

Samræðurnar verða hljóðritaðar með samþykki þeirra sem taka þátt. Markmiðið er að varðveita ólíkar frásagnir og minningar tengdar jarðhræringum á Reykjanesi áður en þær glatast með tímanum.

Ábendingagátt