Opið hús – Breyting á deiliskipulagi Vesturbæjar – Merkurgata
Auglýsing um skipulag – Hafnarfjarðarbær Opið hús verður þriðjudaginn 11.08.2026 frá kl. 9:00–15:30 að Norðurhellu 2, 221 Hafnarfirði, þar sem…
Aðstandendum, gestum og gangandi er boðið á opið hús þann 16. apríl næstkomandi milli 13 og 16. Tilefnið er opnun Miðstöðvar vinnu og virkni, nýs sameinaðs vinnu- og virkni úrræðis fyrir fatlað fólk í Hafnarfirði. Tækifæri gefst þá á að kynna sér fjölbreytta starfsemi innan deilda Miðstöðvarinnar.
Opið hús verður bæði á Selhellu 7, þar sem Umhverfisvaktin er til húsa, og á Suðurgötu 14, bæði á fyrstu hæð þar sem tjáskipti og skynörvunarhluti Miðstöðvarinnar er staðsettur sem og á annarri hæð þar sem áhersla er lögð á líkamlega- og félagslega virkni.
Miðstöðvarkórinn mun svo loka deginum með nokkrum góðum lögum sem valin voru af kórmeðlimum.“
Hvar: Selhellu 7 og Suðurgötu 14
Hvenær: Fimmtudaginn 16. apríl
Klukkan? Milli kl. 13 og 16