Opið hús verður þriðjudaginn 1. desember 2026 frá kl. 9:00 til 16:00 að Norðurhellu 2, 221 Hafnarfirði, þar sem hægt verður að kynna sér tillögu að breyttu deiliskipulagi.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 21. október 2026 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Íbúðarhverfis í Norðurbæ Hafnarfjarðar vegna ofanvatnslausnar milli Suðurvangs og Reykjavíkurvegar, í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga 123/2010.
Tillagan felst í því að afmarkað verði svæði fyrir 880 m² ofanvatnslausn/geymslutank, sem verður undir yfirborði á grænu svæði á milli Suðurvangs og Reykjavíkurvegar. Hverfisvernd fellur út að hluta. Jafnframt er bætt við kvöð um lögn sem tengir ofanvatnslausnina við ofanvatnskerfi frá Hrauni vestur.
Á kynningartíma, frá 5. nóvember til 20. desember 2026, má nálgast tillöguna á vef skipulagsgáttar https://skipulagsgatt.is/, mál nr. 1243/2026.
Athugasemdum og/eða ábendingum skal skila rafrænt í gegnum skipulagsgátt HMS. Ef óskað er frekari upplýsinga um tillögur í kynningu er hægt að senda fyrirspurn á netfangið: skipulag@hafnarfjordur.is.
Umhverfis- og skipulagssvið Hafnarfjarðar