Opið hús verður þriðjudaginn 29. júlí nk. frá kl. 9 til 16 að Norðurhellu 2, 221 Hafnarfirði, þar sem hægt verður að kynna sér tillögu að nýju deiliskipulagi ásamt umhverfisskýrslu vegna nýs deiliskipulags fyrir 4. áfanga Hellnahrauns.

Nýtt deiliskipulag, Hellnahraun 4. Áfangi

Bæjarráð Hafnarfjarðar, f.h. bæjarstjórnar, samþykkti á fundi sínum 10. júlí sl. að auglýsa nýtt deiliskipulag í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Gert er ráð fyrir 66 misstórar atvinnulóðir ætlaðar léttum, hreinlegum iðnaði eða þjónustu. Svæðið er skilgreint sem athafnasvæði í Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013–2025 og er staðsett sunnan aksturs- og skotæfingasvæðis í Kapelluhrauni. Kynningartíminn er til 28.ágúst 2025 og má nálgast tillöguna á vef skipulagsgáttar skipulagsgatt.is og hfj.is/skipulag. Athugasemdir eða ábendingar skulu berast með rafrænum hætti í gegnum skipulagsgátt.

Sjá nánar: hfj.is/wze78k
Ábendingagátt