Málþing um upplýsinga- og miðlalæsi verður haldið í fyrirlestrarsal Grósku í Vatnsmýri fimmtudaginn 16. febrúar frá kl. 9-12
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra mun opna málþingið með ávarpi áður en aðalfyrirlesari dagsins Stephanie Comey tekur til máls. Stephanie er sérfræðingur á sviði miðlalæsis og aðstoðarforstjóri írsku fjölmiðlastofnunarinnar (BAI) en það er áhugavert að líta sérstaklega til þeirra þar sem fyrirtæki á borð við Meta og Google eru með höfuðstöðvar sínar í Evrópu á Írlandi og falla því undir eftirlit þar. Á málþinginu munu síðan ýmsir sérfræðingar á sviði upplýsinga-, mynd- og miðlalæsis stíga á svið og miðla þekkingu sinni ásamt því að kynna niðurstöður úr nýlegum rannsóknum og spennandi verkefni sem framundan eru. Þá mun málþinginu ljúka með pallborðsumræðum þar sem miðlalæsi verður rætt útfrá ýmsum hliðum. Fundarstjóri er dr. María Rún Bjarnadóttir, varaformaður Fjölmiðlanefndar.
Dagskrá málþingsins
- 9:00 – 9:15 Opnunarávarp – Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra
- 9:15 – 9:40 Aðalfyrirlesari – Stephanie Comey – aðstoðarforstjóri írsku fjölmiðlastofnunarinnar (BAI). Stephanie er sérfræðingur á sviði miðlalæsis hjá írsku fjölmiðlastofnuninni BAI en það er áhugavert að líta sérstaklega til þeirra þar sem fyrirtæki á borð við Meta og Google eru með höfuðstöðvar sínar í Evrópu á Írlandi og falla því undir eftirlit þar.
- 9:40 – 10:00 Umræður og spurningar til Stephanie
- 10:00 – 10:15 Kaffi
- 10:15-10:25 Fjölmiðlanefnd – Skúli B. Geirdal, verkefnastjóri miðlalæsis – Nýjar niðurstöður rannsóknar um hatur, skautun og traust á Íslandi
- 10:25-10:35 Ríkislögreglustjóri – Guðbjörg S. Bergsdóttir, verkefnastjóri – niðurstöður úr þolendakönnun um net- og tölvubrot og mikilvægi forvarna (m.a. miðlalæsis almennings) til að koma í veg fyrir slík brot. Áhersla á aldurshópinn 60+.
- 10:35-10:45 AwareGo – Ari Kristinn Jónsson, forstjóri – Hvernig tryggjum við best öryggi við notkun upplýsingatækni til samskipta og annarra hluta?
- 10:45-10:55 KrakkaRÚV – Karitas M. Bjarkadóttir, fréttastjóri Krakkafrétta. Hvernig á að flytja fréttir fyrir börn og ungmenni. Hvað ber að hafa í huga, á hverju hafa þau áhuga og hvernig á að ná til þeirra?
- 10:55-11:05 Persónuvernd – Steinunn Birna Magnúsdóttir, sviðsstjóri erlends samstarfs og fræðslu. Hvernig á að gæta að persónuvernd á netinu og mikilvægi forvarnafræðslu.
- 11:05-11:15 Umboðsmaður barna – Guðríður Bolladóttir, yfirlögfræðingur – Leiðbeiningar til foreldra, ábyrgðaraðila og starfsfólks í skóla- og frístundastarfi sem varða netið, samfélagsmiðla og börn.
- 11:20-12:00 Pallborð – Miðlalæsi útfrá ýmsum hliðum
– Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar
– Sigurður Sigurðsson, sérfræðingur í miðlanotkun barna og ungmenna hjá Heimili og skóla og SAFT
– Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir, Landsbókavörður
– Guðrún Helga Jónasdóttir, verkefnastjóri hjá Kvikmyndamiðstöð Íslands
Þar sem takmarkað sætaframboð er í boði í salnum er mikilvægt að skrá sig tímanlega. Fyrir þá sem komast ekki verður málþingið í boði í streymi. Hægt er að velja þann valmöguleika í skráningarforminu.
SMELLTU HÉR TIL AÐ SKRÁ ÞIG Á MÁLÞINGIÐ
Upplýsinga- og miðlalæsisvika í fyrsta skipti á Íslandi
Sérstök fræðsluvika tileinkuð upplýsinga- og miðlalæsi verður haldin í fyrsta skipti á Íslandi vikuna 13. – 17. febrúar 2023! Allir skólar á landinu fá sendan fræðslupakka með sex fræðslumyndböndum ásamt kennslustuðningi. Fræðsluefnið er ætlað fyrir börn á miðstigi um samskipti og líðan á netinu, áhorf á klám, fréttir og falsfréttir og ábyrga notkun samfélagsmiðla. Tengslanet um upplýsinga- og miðlalæsi (TUMI) stendur að vikunni með styrk frá Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu og Sóley, styrktarsjóði á vegum Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
Eftirfarandi stofnanir, ráðuneyti, fyrirtæki og samtök eiga fulltrúa í tengslanetinu:
Fjölmiðlanefnd, SAFT & Heimili og skóli, Menntasvið Kópavogsbæjar, Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar, Mixtúra, Kvikmyndamiðstöð, Landsbókasafn Íslands, Menningar- og viðskiptaráðuneytið, Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið, RÚV – Ríkisútvarpið, Menntamálastofnun, Menntavísindasvið, Listaháskóli Íslands, Háskóli þriðja æviskeiðsins, Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Endurmenntun HÍ, Símenntun HA, RANNUM – Rannsóknarstofa í upplýsingatækni og miðlun, Barnaheill, Landsnefnd UNESCO, Persónuvernd, Þjónustumiðstöð Breiðholts, Samstarfshópur um stafræna borgaravitund, Upplýsing – félag bókasafns- og upplýsingafræða, Félag framhaldsskólabókasafna, Samtök forstöðumanna almenningsbókasafna, AwareGO og RIFF- Reykjavík International Film Festival.