Opinn fundur með oddvitum

Þriðjudaginn 28. apríl nk. verður haldinn opinn fundur með oddvitum allra þeirra flokka sem bjóða fram í Hafnarfirði til sveitarstjórnarkosninga laugardaginn 16. maí nk. Fundurinn verður haldinn í hátíðarsal Hauka á Ásvöllum frá kl. 17-18:30. Þar munu oddvitar flokkanna kynna sig og helstu áhersluatriði sinna flokka og síðan gefst fundargestum tækifæri á að spyrja spurninga. Stjórnandi umræðu verður Sirrý Arnardóttir.

Oddvitar allra framboðsflokkanna í Hafnarfirði hafa staðfest komu sína:

• A – Vinstrið – Ester Bíbí Ásgeirsdóttir
• B – Framsóknarflokkur – Valdimar Víðisson
• C – Viðreisn – Karólína Helga Símonardóttir
• D – Sjálfstæðisflokkur – Orri Björnsson
• M – Miðflokkur – Einar Geir Þorsteinsson
• S – Samfylking – Guðmundur Árni Stefánsson

Íbúar og öll önnur áhugasöm eru hvött til að nýta sér tækifærið og mæta til fundarins til að eiga beint samtal við oddvita flokkanna.

See less
Ábendingagátt