Laugardaginn 11. maí kl. 14 bjóðum við ykkur hjartanlega velkomin á opnun sýningarinnar Í tíma og ótíma, þar sem sjónum er beint að margvíslegum birtingarmyndum tímans í verkum ‏þ‏‏riggja alþjóðlegra samtímalistakvenna, þeirra Örnu ÓttarsdótturLeslie Roberts og Amy Brener. Sýningarstjóri er Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir.

Tíminn er allt í kring. Hann líður, umlykur og rennur okkur stöðugt úr greipum. Frá örófi alda hafa heimspekingar og aðrir hugsuðir velt fyrir sér eðli tímans án þess að komast að endanlegri niðurstöðu. Tíminn fellur því í flokk með þeim fyrirbærum í tilvist okkar sem við höfum ekkert eitt svar við, heldur er hann stöðug uppspretta nýrra vangaveltna.

Á sý‎ningunni er tíminn skoðaður í víðu samhengi, allt frá heimspekilegum vangaveltum um hugtak og eðli tímans til þeirrar persónulegu túlkunar á samtímanum sem einkennir verkin en hugleiðingar um tíma fléttast á mismunandi hátt inn í verk ‏og vinnuaðferðir allra þriggja.

Handverkið sem finna má í verkum listakvennanna ber merki um þrá eftir hægagangi og íhugun sem mótsvar við hraða samtímans. Verk ‏þeirra mætti þannig lesa sem tilraun til að stöðva tímann eða jafnvel til þess að stíga út úr samtímanum og inn í óræðan tíma listaverksins.

Aðgangur ókeypis – sjáumst í Hafnarborg

Ábendingagátt