Sýningin Áþreifanlegt – Ull á striga verður í Litla Gallerýi, Strandgötu 19, dagana 7. ágúst – 17. ágúst. Sérstök sýningaropnun verður fimmtudaginn 7. ágúst frá 18:00-21:00 og allir hjartanlega velkomnir!

Samkvæmt Íslensku orðabókinni er orðið “áþreifanlegur”; tekið verður á, snertanlegur, ómótmælanlegur, áþreifanlegar staðreyndir. Við erum allskonar það er sannleikur. Sterkar, veikar, fatlaðar, bugaðar og máttugar.

„Áhugi minn á gyðjum og táknmyndum kveiktu Valgerður H. Bjarnadóttir og Marija Gimbutas. Fjögra til 40 þúsund ára gömul líkneski hafa fundist víða um Evrópu, allt frá Miðjarðarhafi til Eystrasalts.

Þessir kvenlíkamar eru taldir vísa til Móður Jarðar, Veraldargyðjunnar sem gefur og skapar. Fornleifauppgröftur bendir til samfélags friðar og velsældar,- áður en stríðsmenning, feðraveldi og tvíhyggja tók við.

Ég hef rissað mörg hundruð skissur og hér eru nokkrar áþreifanlegar.

Takk Valgerður, sýn þín á söguna sáir fræjum.
Takk Vanadísir og Jötnameyjar,“ segir Sigríður Júlía Bjarnardóttir

——–

Menntun:
Kennaradeild MHÍ 84-88
SanFrancisco Art Institute 89-90
Kennari 1990 – 2024
Ýmsar sýningar í gegnum árin.
Meðlimur í SÍM

——–

Aðrir opnunartímar:

Fös.                    8. ágúst             14:00 – 17:00
Lau.                    9. ágúst             14:00 – 17:00
Sun.                  10. ágúst             14:00 – 17:00
Þri. – fös     12.- 15. ágúst            14:00 – 17:00
Lau                    16. ágúst            14:00 – 17:00
Sun                    17. ágúst            14.00 – 17:00

—————————–

The Icelandic dictionary defines “tangible” as something that can be handled, something touchable, indisputable, concrete facts. The truth is that there are all kinds of us. Strong, weak, disabled, broken, and powerful.

My interest in goddesses and symbols was inspired by Valgerður H. Bjarnadóttir and Marija Gimbutas. All over Europe, statues dating back 4.000 to 40.000 years have been discovered, from the Mediterranean to the Baltic Sea.

These female bodies are thought to reference Mother Earth, the worldly goddess who gives and creates. Archeological digs indicate a community of peace and prosperity, before it was replaced by a culture of war, patriarchy and dualism.

I have done several hundred sketches and here are some tangible ones.

Thank you Valgerður, your perspective on history plants seeds. Thank you, goddesses and giants.

– Sigríður Júlía Bjarnardóttir

Ábendingagátt