Vetrarfrí október 2026
Vetrarfrí er í grunnskólum og Tónlistarskóla Hafnarfjarðar mánudaginn 26. október og þriðjudaginn 27. október. Af því tilefni býður Heilsubærinn Hafnarfjörður…
Föstudaginn 13. nóvember kl. 18 munu gítarleikararnir Björn Thoroddsen og Andrés Þór koma fram á næstu Síðdegistónum í Hafnarborg. Á tónleikunum munu þeir bjóða upp á fjölbreytta efnisskrá þar sem djassstandardar og þekktir poppslagarar fá nýjan búning í útsetningum fyrir tvo gítara.
Björn og Andrés eru báðir reyndir gítarleikarar sem hafa komið víða við á sínum tónlistarferli. Þeir eiga það sameiginlegt að hafa sterkar rætur í djassinum en sækja jafnframt innblástur í ólíkar tónlistarstefnur. Á tónleikunum munu þeir leiða saman ólíka stíla og nálgun í lifandi samspili þar sem spuni, melódía og leikgleði verða í fyrirrúmi.
Tónleikarnir standa í um klukkustund og er aðgangur ókeypis.
Síðdegistónar í Hafnarborg eru styrktir af Hafnarfjarðarbæ. Smelltu hér til að kynna þér tónleikadagskrá haustmisseris 2026 og sjá hvað er framundan í Hafnarborg. Ljósmynd: Ásta Magnúsdóttir (Ásta Magg).